Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Marakóskt gúmelaði fyrir Sif,,,,,,

gúmelaðiðÞað er enn ein tannpínuvaktin.,,, það má segja að í dag hafi hún verið með erfiðasta móti.  Svona vakt á að vera tveir tímar, ég var í 6.  Það komu 19 manns í dag og allir með frekar erfið verkefni fyrir mig,, meðal annars þurfti ég að sauma saman neðri vör, draga vonlausar tennur og hjúkra brotnum sálum,,,, erfitt.  Það var þó huggun harmi gegn að í kvöld komu Sif og Arnar í mat.  þau eru búin að vera að biðja um að smakka svona Tagínumat.  Þannig að í kveld lagði ég allt í sölurnar.  Herborg bakaði brauð. 

 Rebekka er hjá okkur loksins en hún er veik greyið.  Eitthvað í hálsinum. Daníella er líka hjá okkur og það er langt síðan hún hefur komið.  Þannig að það er nóg um að vera þessa helgina.

Ég er mikill trúmaður á comfort í mat og neyslu hans.  Comfort skilgreini ég þannig að það sé hægtveislan að borða þetta með höndunum,  eða nota brauð sem skeiðar þegar matar er neytt, ég finn það alltaf betur og betur að maður er lengur að borða hann með þessu móti og bragðið kemur einhvernvegin betur fram,  þar fyrir utan er gaman að vera skítugur  um hendurnar og dálítið subbulegur. Matur fyrir sálina og í kvöld veitir mér ekki af.

  

Heill kjúklingu niðurskorinn í óreglulega bita fyrir comfortið.

 

í botn tagínunnar set ég olíu, Kanilstöng, salt og pipar, chili, hvítlauk og engifer.  (same old same old)

steiki kjúklinginn í smá stund í þessu, bæti svo við kartöflum ósöðnum, epli, appelsínu, furuhnetum, döðlum hvítlauksgeirum og smá niðurskornum lauk.  Hellti svo hálfum litlum bjór yfir allt saman ásamt ríkulegu af arabísku kjúklingakryddi.  saffran af hnífsoddi.  Þetta er soðið lengi þar til allt saman maukast að einhverju leyti.  Þetta er síðan borðað með höndunum og brauði.

unglingarnirVið drukkum ástralsk vín með þessu "leap of faith" sem var gott og milt, bara keypt út af nafninu.  Sem og bjór, mér finnst bjór vera bestur með svona mat. 

 

Maturinn var fínn. Félagskapurinn góður, og tónlistin fín, meira að segja unglingarnir borðuðu, svo kvöldið var hið  ágætasta.  Sif og Arnar eru svo að fara til Marocco eftir tæpan mánuð, vonandi fæ ég eitthvað í búið þaðan, hlakka til að komast þangað sjálfur.

 

Daði 

 

 


Fyrir fiskunnendur sem aldrei fá fisk lengur,,,,

vantar Míu

Ég verlsaði með stelpunum í dag,, ég var með alla hersinguna á eftir mér,, Herborg, Rebekka (veik) og Mía.  Hvað er í matinn? ég er svöng? má ég fá þetta og má ég fá hitt,,,, við komum að kjöt og fiskborðinu og þarna var óspennandi kjöt í kílóavís og svo girnilegar stórlúðusteikur, steinbítur, lax, silungur, saltfiskur, kinnar og karfi,,, allt matur sem mig langaði í ,, en stúlkurnar voru ekki á sama máli þannig að ég endaði með Entrecote í poka.

 

Sauð kartöflur í vatni í 10 mín.  flysjaðar.  settar á pönnu með rjóma, vatni, og sykri.  Gert þetta áður og talað um það hlýtur að vera.   sauð líka aspas í svipaðri blöndu.  steikurnar voru saltaðar, steiktar í eina mínútu á hvorri hlið og flamberaðar í púrtvíni.  settar í ofninn í smá stund.  Sósan var kjötsoð ca 1 dl settur á pönnuna ásamt svona 50 ml púrtvín og soðið niður með hvítlauk.  ég nennti ekki að hafa neitt meira enda í erfiðu skapi vegna yfirvofandi neyðarvaktar um helgina og fiskleysis,,,,

 

Tom waits er sammála mér,,,, 


Marókóskt lamb fyrir Langa,,,,,

Það er miðvikudagur.  Ég fór í dag og keypti hlaupagrind fyrir Míu þar sem hún er orðin svo sterk ogÞnglynd Tara mobil,,,vona að hún fái þráhyggju fyrir þessu.  Við versluðum í dag stórt, enda varla annað hægt þegar heimilin eru á leið í gjaldþrot á íslandi, væri Ingibjörgu ekki nær að vera frekar hérna heima og redda þessu en að vera í Afganistan og reyna að koma okkur í öryggisráðið,,ég held að það að vera í öryggisráðinu hjálpi mér ekkert með vextina,,,,,,, Las bloggið hjá Pétri Tyrfings enn og aftur, er gríðarlega ánægður með að hann sé farinn að blogga aftur, mikill penni og skemmtilegur.  Þar fer hann frábærlega með það af hverju Solla sé með höfuðklút á ferðalagi sínu, skora á þá fáu sem lesa þetta blogg að kíkjá Pétur á eyjan.is.   Læt fylgja mynd af miðjubarninu henni Töru.  Hennar er sárt saknað.

 

Síðan á páskadag hefur lambið legið í ofninum hjá mér og ég orðinn frekar órólegur.  Það var svosem ekki mikið eftir en nóg til að bjóða í mat,  Langi og hans fagra frú ætla að koma í kveld og borða með okkur.  Langi aka Torfi er kollegi og vinur, aukreitis er hann íslendingur að sanni.  Hann les ljóð og ævisögur og gengur á fjöll,  menn verða ekki myndarlegri en svo.  Hans ektafrú Elva læknanemi af Danmörku kom með.  Hún er góð.Hjónaleysi með Míu

Lambið var úrbeinað og af því fékk ég kannski 700 gr af kjöti.  Olía sett í Tagínu, söltuð, kanilstöng sett útí, arabískt kjúklingakrydd, paprikukrydd, heill hvítlaukur, stór biti engifer, heill chili niðursneiddur (fyrir þá sem ekki þora þá má minnka þetta auðvitað)  Kjötið er steikt í smá stund, svo bætti ég við afgangskartöflum frá því um daginn og eitthvað af soðinu sem var hlaupið,  appesínu, epli, slatta döðlum, já og engu fleiru held ég.  Soðið lengi og vel eins og fólk í marókó gera,, að ég held,,,  

Við bökuðum brauð í dag sem var borðað með þessu,  

allt blandað saman í skál.

 

7,5 dl hveiti

tsk salt

eitt egg

2,5 tsk ger

tsk sykur

3 dl volg mjólk

dl matarolía

hnoðað og látið hefast í 30 mín og svo hnoðað aftur og afur látið hefast,, skipt í bollur og bakað,,,

ljúffengt,,,

 

 


Lambalæri af nýslátruðu kryddað með ansjósum reyktum hvítlauk,majoram og borið fram með kanil rauðkáli, og ofnbökuðum kartöflum.

Það er Páskadagur.  Eins og segir í fyrri bloggfærslu er hann haldinn hátíðlegur vegna páskakanínunnar og sigri hennar yfir Jesú.  Ég á tvær dætur sem fengu páskaegg, sú eldri sem er níu ára er reyndar ekki hjá okkur á páskunum en hún heldur uppá Páskana ekki vegna þess að Jesú gekk í gegnum það sem hann á að hafa gengið í gegnum heldur vegna Páskaeggja.  Og kirkjan segir ekki neitt frekar en fyrri daginn.  Það er svo mikið akkorð í gangi hjá þeim núna að þeim er alveg sama held ég.  Hvað veit ég svosem.  Fyrir mér er þetta frí sem skapast í kringum Páska velkomið, gott að vera með fjölskyldunni og slaka á.  ég get reyndar ekki mikið slakað á þar sem Mía litla öskrar á mig stanslaust,,, held hún sé þreytt,, 

 

Súpa ég gerði súpu í hádeginu, tel það snjallt þegar bíður stór matarveisla um kvöldið,,, nú er ég að hugsa eins og frönsk kona....... Þetta var ekki merkileg súpa en hún var svona

Vatn sett í pott með rjúpnasoði frá því um jólin.  Steiki á pönnu, chili, hvítlauk, engifer og set útí vatnið, ásamt einni dós af niðursoðnum tómötum.  Síðast set ég úti þegar ég er búinn að smakka allt til slatta af kúfskel sem ég átti í frysti,,,,  ljúffengt,, vildi að ég hefði átt gott brauð og kalt hvítvín,,,, jæja það kemur síðar. 

 Forréttur  Blinis með kavíar. Þennan rétt fengum við hjá Sif og Arnari á áramótunum síðustu.  Þetta er í rauninni bara samsetningur.  maður tekur eitt stk blini,  vætir það í hlynsírópi, þarnæst kemur reyktur lax, svo kavíar, þe því fínni því betri, við erum nú bara með grásleppuhrogn hér bæði svört og rauð, svo sýrður rjómi.  Þetta er ótrúlega skemmtilegur forréttur líka fyrir fólk að borða,, skemmtilegir litir og mikið af allskonar bragði.

Páskalambið.

Ég keypti þetta læri fyrir fjórum dögum og hann sagði mér það kjötmeistarinn að þetta væri af nýslátruðuð en ég held að það sé reyndar ekki lamb heldur veturgamalt,, shit hvað ég er mikið utan af landi,,,en það hefur því aldrei verið fryst.  Það er búið að liggja í ískápnum hjá mér síðan þá og í dag marineraði ég lambið.

sett saman í mortél.

kóríanderfræ.  Salt.  Pipar.  Hvítlaukur.  Majoram (hér má eflaust nota hvaða kryddjurt sem er en þetta átti ég til svo ég nota það bara)  allt er þetta marið saman og ég lét það standa í smá stund til að blandast.

ég sker alveg inn að beini litlar holur í kjötið og í hverja holu sting ég geira af reyktum hvítlauk, ansjósuflaki og majoram sem ekki fór í mortélið.  svo nudda ég lærið vel að utan með mortélmixinu.  geng frá því þar til í kvöld.   ÉG skteikti síðan lambið örlítið á pönnu á öllum hliðum og setti í sjóðheitan ofninn undir grillið í svona 3 mínútur og svo niður á 180 gráður í 1,5 klst.  Eða þar til kjarnhiti er svon 70 gráður.  Vantar samt kjötmæli,, þarf að kaupa hann,,, note to self.

 

Rauðkálið:  Skorið þunnt ásamt sellerí.  Í tagínuna set ég olíu, smjör, salt, pipar, engifer, og epli. notaði hálft rautt epli að þessu sinni.  þar oná kemur rauðkálið og selleríið og þetta sýð ég saman heillengi, set síðan jafnvel í ofninn ef mér finnst þurfa.  sé til,, vanalega bragðbæti ég þetta með sultu í lokin. 

Kartöflurnar eru rjómasoðnar,, þe ég sýð þær í blandi af vatni, rjóma og sykri,  smám saman gufar vatnið upp og eftir situr rjómakarmella utan um kartöflurnar,, ljúffengt,,,, 

 

Sósan er líka einföld.  ég notaði afgangs rjómakarmellu þegar kartöflurnar voru búnar.  bætti við hana villisveppum sem við Rebekka tíndum í haust og bragðbætti síðan með kalkúnakrafti í bland við villikraft,  Soðið af kjötinu gerir síðan gæfumuninn.  smakkaði til með salti og pipar og til að toppa þetta fór örlítið af Púrtvíni útí. 

 

Eftirrétturinn var Herborgar,  Panna cotta að hætti hússins (eins og vanalega)  Afbragð

  Tónlistin í kveld var föður mínum ekki að skapi, frekar en vanalega,, þetta er tónlist dauðans sagði hann,, en hey,, þetta er betra en HLH og Ellen Foley,,, það verður ekki deilt um smekk,,,, 


Grilluð purusteik með rjómasoðnum kartöflum og sveppum.

  Ég hef ekki eldað mikið undanfarið, hef meira verið í mat en í tilefni af innreið páskakanínunnar inní súkkulaðiland grillaði ég purusteik í fyrrada.  það hef ég ekki gert áður,  þe að grilla hana.  Sif hafði gefið okkur ljúffenga indverska veislu af grillinu daginn áður og  því var ég í grillstuði,,, og ofninn virkaði ekki .Ljóið

 

Herborg fallegaÞað er skorið í steikina á hefðbundin hátt en þetta var mjög fínt hryggjarstykki, ég gerði reyndar þau leiðu mistök að skera það í ranga átt miðað við trefjarna í kjötinu en það reddaðist.  kryddaði með salti, pipar, kanil og lárviðarlaufum sem stungið er í puruna.  Það verður að gæta vel að því að salta puruna mjög vel.  Svona var kjötið í svona fjóra fimm tíma eitthvað svoleiðis,,, þá sauð ég puruna í vatni í svona 10 mín og skelti henni svo á grillið.  Vatnið notaði ég síðan í sósuna.  Á grillið fór síðan allt afgangsrósmarín sem ég átti því mig langaði að athuga hvort ég fengi smá smókí bragð en ég tók nú ekki eftir því svosem. Ég steikti þessa sveppi sem ég man ekki hvað heita og gerði rjómasykurkartöflur sem voru ljúffengar.  Sósan var einföld og í raun gerði Herborg Bjórkælirinnmeira af henni en ég.  Sveppirnir og soðvatnið fer í pott ásamt smjöri og rjóma,  setti í þetta sósugrunn úr búðinniSteikin á Laugarvatni.  Salt pipar og Wiskey er síðan notað til að smakka til,,   Maturinn var mikið sucsess.  Drukkum rauðvín, Montecillo Crianza sem er létt meðalfyllt vín,, og frekar þurrt,, og svo síðar drukkum við Arnar margar fjörur af víni og áfengi í pottinum, stelpurnar gáfust upp og fóru að sofa en ég held að við Arnar höfum jafnvel komist að niðurstöðu um allar ósvaraðar spurningar alheimsins hingað til. Sveppirnir

 

Tónlistin var dýrleg.  Minimal teknó frá Arnari, Dusty kid og ég var með Cinematic orcestra sem ég er að elska núna,,, svo á leiðinni heim hlustaði ég á Ágætis Byrjun í 2948402857564738291910102993847 5675757484839392938747 sta skiptið held ég,,,,  Stina Nordenstam var síðan í þynnkunni.


Skáldagnocchi með reyktum hvítlauk,,,,

skáldið í fjölskyldunniDagurinn var tekinn í að þrífa.  Það er eitt það leiðinlegasta sem ég geri held ég ,  þrífa og fara í fermingarveislur, enda geri ég það ekk, þe fermingarveislurnar.  Við þrifum semsagt íbúðina hátt og lágt, og ég lærði í fyrsta sinn að setja utan um sængina mína sjálfur.  ég er 31 árs.  þannig að nú get ég það.  dagurinn fór svo í snatt og snúninga, fékk mér bæjarins bestu og kók í hádeginu.  og ég verð að segja að það er besti skyndibiti sem ég fæ.

það stefndi í rólegheit hjá mér og Herborgu í kvöld.  Þá var löngu ákveðið að fara í sumarbústað með vinafólki en síðan er svo mikið að gera í skólanum hjá Herborgu að við ákváðum að vera bara heima alla páskana.  Rebekka er því miður ekki hjá okkur um páskana en hún er að skíra litilu systur sína fyrir vestan. ,,, við versluðum því í dag og undirbjuggum páskana svo í dag þá hringdi Jón Atli bróðir hennar og við ákváðum að borða saman fjölskyldurnar,  ég átti svosem ekki mikið einhvernvegin nema í dag keypti ég tilbúið gnocchi,  og reyktan hvítlauk.  Það átti að vera grunnurinn. Ég hef ekki notað reyktan hvítlauk áður og mig grunar einhvernvegin að ef hann sé notaður eins og óreyktur hvítlaukur þá muni reykjartónninn fara af honum svo ég setti hann bara í fólíu með salti og góðri ólífuolíu og í ofninn og hef hann á hliðarlínunni.

 Skáldamatur:

 Steikti sveppi og spínat í smjöri sem meðlæti.

 

sósan var:

lítill bjór  settur á pönnu og suðan látin koma upp.  arkueyrar gráðostur settur úti ásamt tveimur hvítlauksrifjum og heilum rauðum chili smátt skorið, smá hvítvín og smá kalkúnakraftur (oscar) soðið þar til þykkt. 

leikkonan í fjölskyldunniGnocchi soðið þar til flaut upp og borið fram með steinbökuðu brauði.  Áður fengum við smá antipasti sem samanstóð af óífum og ætisþistlum og brauði,,,,,, salat var minimal og samanstóð af spínati og fetaosti,, ekkert merkilegt en ógeðslega gott engu að síður..,,, við áttum frábæra kvöldstunda saman með rauðvíni og spjalli,, og sannar aftur að ítölsk stemming og matargerð er einföld og skotheld.  fyrir þá sem ekki vita hvað gnocchi er þá er bara að googla það og prófa....frábært frávik frá pasta.

 

í kvöld var Cinematic orchestra á fóninum og skapaði jazzí stemmingu fyrir okkur,,, það fór reyndar meira fyrir tali og umræðum en tónlistinni,,, en stundum er það það sem maður vill,, svona bakgrunnstónlist,,,,,talandi um tónlist þá eru íslensku tónlistarverðlaunin nýskeð og mér finnst að það þurfi að fara að endurskoða þetta eitthvað.  vísa tilein af prinsessunum bloggsins hjá Dr Gunna þar sem hann skrifar frábærlega um þetta, eiginlega alveg það sama og mér finnst, þe fáránlegir tilnefningarflokkar, Felix Bergson ofsalega þreyttur í þessu finnst mér. Tilnefningarnar ekki góðar, vantaði Ólaf Arnalds, Sigurrós, Skakkamanage, ofl ofl ofl jæja, það verður ekki deilt um smekk

 

Daði 

 


Norður afrískt svínakjöt,,,,,

Mía að kljást við eldvarnarteppiðÞað er búið að vera mikið að gera,, bæði í vinnu og fjölskyldu,,, árshátíð hjá Rebekku í gær þar sem hún dansaði cha cha cha við draumaprinsinn hann Magnús,,, á reyndar eftir að hitta piltinn en það er mikið talað um hann,,, þau eru níu ára....  Herborg er í skólanum og er dugleg,, hún er að ala barnið og læra,, og Mynd frá París í ramma frá Skorradalþað er meira en ég gæti,,,, í dag var mikið að gera í vinnu,, aðgerð eftir hádeg,,,, náði í RED áðan og tók til í eldhúsinu og fór að elda.  Herborg er sannfærð um að ég sé ættaður frá Norður Afríku þar sem ég hef dökkan húðlit og er austan af fjörðum og er "skapmaður" eins og hún segir,, allavega heillar þessi eldamennska þeirra mig mikið og hér á eftir fylgir tagínuréttur sem ég elska.Rebekka á árshátið

 

í Tagínu set ég.

 

ólífuolíu.  salta hana frekar mikið og set kanilstöng útí sem ég brýt niður.  stór biti af engifer smátt skorið og einn chilibelgur skorinn niður og fræ og allt fylgja með vil hafa þetta sterkt.  Í þessu steiki ég svínakjötið þar til vel gullið.  síðan bæti ég við þremur hvítlauksrifjum stórt skornum,,,,  einum rauðlauk stórt skornum, fullt af döðlum,, epli,,, mandarínu,,,, þremur tómötum,, í rauninni valdi ég bara eitthvað sem ég átti í ískápnum,, það er hægt að nota hvað sem er í þetta,, bara eitthvað kjöt og eitthvað grænmeti,,,, ég krydda þetta með paprikukryddi,,,,, túrmerik,,, og afrísku kjúklingakryddi frá pottagöldrum,,, salti og pipar,, og muldum kórianderfræjum,,, já og handfylli af Majoram.  í lokin vantaði smá sætu og eld þannig að ég setti sultuna hennar Ástu Bínu eins og vanalega,, þarf að ræða við hana um að sigra kokkaheiminn með þessari sultu,, ótrúlega mikil snilld... meðan þetta sauð í svona 1,5 klst,,, já svo lengi dundaði Mía sér við að rífast við eldvarnarteppið og RED horfði á unglingamynd,,  ég læt fylgja myndir úr eldhúsinu hjá mér fyrir Hönnu vinkonu svo hún drepist úr söknuði,,, já og af Míu og Rebekku,,, dætrum mínum.

 Tom Waits er í græjunum,,,, eins og undanfarna daga,,, líklega mesti snillingur tónlistarsögunnar.... 

 

Kveðja Daði,,,, 

  


Grillaðar Sardínur með basilhvítlaukschilitómatsósu og grilluðu brauði

SardínurnarÉg og Mía tókum göngutúr um Miðbæinn í dag.  Fórum í morgunmat á Roma, gengum niður Laugarveginn og komum við í bókabúðum á leiðinni, fórum líka í gluggaverslunarleiðangur.  Við fórum svo í Kolaportið þar
sem ég keypti frosnar sardínur, smokkfisk og skelfisk.  Því næst lá leiðin á ljósmyndasafnið með stuttri viðkomu á listasafni Reykjavíkur.  Á ljósmyndasafninu er nú sýningin Staðir/Places og ljósmyndarinn er Einar Falur Ingólfsson þar sýnir hann myndir af ferðalögum sínum frá 1998 til 2008 og er gaman af.  Þarna eru myndir héðan og þaðan og í skemmtilegri kantinum er td mynd af slátrun á svíni og önnur af jarðarför,,, kannski ekki mest upplífgandi tilefnin en þessar vöktu athygli mína að minnsta kosti.  Mæli með jing og jangþessu safni.  En þá að sardínunum.  Sex sardínur.  Það þarf að gera að þeim og afhreistra sem er létt verk en tímafrekt,,, ég skóf hreistrið af með fingrunum undir rennandi vatni.  Ég

saltaði þær svo frekar mikið og lét þær vera þannig í um fjóra tíma.  Tómatsósan er auðveld.  Mýkir hvítlauk og chili á pönnu, ein dós niðursoðnir tómatar og saxað basil, svona handfylli,, já og svo balsamik edik  ca 1 msk, salt og pipar.  ég lét tómatsósuna kólna í 4 tíma og hitaði svo upp, mér finnst eins og basil og hvítlauksbragðið verði betra þannig.  Brauðið er einfaldlega ristað í ólífuolíu á grillpönnu.

takk fyrir migÉg steikti sardínurnar á meðal hita á grillpönnu í sérsöltuðu smjöri þar til þær voru orðnar golden og krispí.

 

borið fram með ruccola og kók.  Ágætis matur fyrir sálina svona á sunnudegi......

Ég  hlustaði á Lee Perry í allan dag og fékk minn skammt þar til eftir svona mánuð held ég ,,, archology vol 1 er þannig að lagið kemur og svo strax á eftir dub útgáfan af því og það fer alveg með mann ,,, en ég elska engu að síður Lee Perry,,, það er ekki annað hægt.,,,

 

Daði

 

 


París að vori og maturinn þar,,,

Ég hef ekkert bloggað sökum þess að ég fór með fjölskylduna til Parísar í smá snemmbúna vorferð, til að slaka á,,, mér þykir París ákaflega skemmtileg borg, og jafnvel sú skemmtilegasta, Rebekka eldri dóttir mín hefur hingað til ekkert farið nema á sólarstrendur og jú einu sinni til Tallin svo þetta var mikil upplifun fyrir hana.  Hún fór efst í Eiffel turninn, fór í messu í Notre Dame,  sá Monu Lisu, tapaði sér í Disney World, blotnaði í fæturnar í Montmatre,  fór hundrað ferðir í Metropolitan,,,,, upplifði sína fyrstu súkkulaðibúð,   á keypti sér regnhlíf, komst að því að jólasveinninn er ekki til, né hafmeyjur, verlsaði vaxlampa við Pompidu og svo góndi hún á göturnar í

París,  annað sem hún sá nóg af voru kaffihúsin,  Það er gaman að sjá frakka borða,  þeir eru lengi að því og njóta þess vel,, mikið af súkkulaði,  Matarlega séð var þetta ágætt, við vorum auðvitað með ungann litla sem er sjö mánaða í dag og hún var siðgæðisvörður og sá til að ekkert var verið að hanga frameftir, hvorki á veitingastöðum né börum,,,,  við fundum frábæran Ítalskan stað sem hafði mesta sjarma og rómans af öllum stöðum sem ég hef komið á, gamall kokkur og vinaleg stemming, myndir af honum sjálfum á veggjunum og heill veggur af dúkkusafninu hans,, hann lék við hvern sinn fingur og þóttist missa kaffi á gesti og hótaði Rebekku með vatnsbyssu kláraði hún ekki matinn sinn,, við fórum líka á ógeðslegasta fondue stað veraldar sem var með gamalt brauð, edikerað vín, vonda skurði af kjöti yfirsoðinn ost í potti og yfir allt saman ógeðslega þjónustu og mat,,,versti matur í parís líklega,,,, við borðuðum endalaust af creme du caramel,,,,, endalaust af víni,,,, endalaust af brauði,, fois gras,,, endur,,, sardínur,,,  sinnep,,, pasta,,,, kjúkling, pizzur,,, kjötsúpu,,,, croissants,,, samlokur,, (þjónninn var skotinn í Herborgu),, grænmetissúpu,,,súkkulaðiís,,,bjór,, kaffi,,,, kakó,,, crepé,,,puslur,,,, og fleira og fleira og fleira,,,,  Hótelið var fínt í St Germain hverfinu,,, flugum heim með osta og kæfur og erum ánægð með ferðina,,,   Bíð svo bara eftir vísa reikningnum,,,

 

 Daði,,,

 

Já og tónlistarlega séð þá er allt við það sama einhvernvegin,,,, nema það að Birgitta Haukdal er búin að gefa út eitthvað sem Rás 2 telur að eigi heima sem plata vikunnar og ég verð að segja ,,,, afsakið mig meðan að ég æli,,, 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband