Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Krispí batter,,,,

Miðvikudagur í feðraorlofi,, einn af þeim síðustu,,ástandið í landinu er þannig að ég þarf að fara að vinna á miðvikudögum aftur,,, æ æ aumingja ég,,,  en ég hef nú aldrei verið latur,,, annað en hornfirðingar,, húðlatir til sjósóknar og bústarfa,,, ég gekk frá námskeiði sem ég ætla að fara á í júlí,,,  var með barnið mitt, , þe það yngra,,,, bölvaði verðbólgunni,,, af hverju var það ekki kosningamál í síðustu kosningum af afnema verðtrygginguna,,,, ég er viss um að það eru margir sem nú hugsa,, hvað var aftur verið að rífast um í kosningunum,, náttúruvernd var aðalmálið,, "fagra ísland"og svo framvegis,, það var öllum sama um unga fólkið sem stefnir nú í þrot,,  meira að segja unga fólkinu sjálfu sem var of upptekið af sojalatte og velmeguninni,,   Nú er staðan sú að við erum með meiri vexti en allir aðrir á byggðu bóli,,, hlýtur að vera,,, og seðlabankinn segir,,, "i told you so",, ég krefst þess að einhverjir verði reknir,, og fuckings samfylkingin sem mamma elskar svo mikið,,, hvar er fagra ísland,,, þetta lið er orðið algerlega samdauna öllu hinu pakkinu,,, meira segja Framsóknarflokkurinn er að meika það,,með grínleikarann fremstan í flokki,,, næst kýs er ég Ástþór,,,

 

Jæjaégerbúinnaðrausa

 

Tvö egg hrærð saman með kryddi sem Sif og Arnar færðu mér frá Marakesh,,, salti og pipar

tvö Ýsuflök skorin smátt,,(Ýsa frá Gísla vini mínum vestmannaeyingi)

velt uppúr þessu og steikt í olíu,,

 

meðlæti Kartöflur og salat og gráðostur,,,

Ekkert sérstakur matur enda er ég í vondu skapi yfir lánunum,, þegar maður er í vondu skapi er engin ást í matnum,,

 

Fari allt til helvítis

 

Daði 


Grillaðar grísalundir og Nautakótilettur með spínatsalati og feta,, og að sjálfsögðu bakaðri kartöflu,,,

Ég fékk dálítið tékk á hve fullorðinn ég er orðinn í dag þegar ég sat í Grindavíkurkirkju og hlustaði á Vortónleika Tónlistarskólans í Grindavík,,,, ég var örlítið þunnur eftir aðeins of mikið Rauðvín í matarboði gærdagsins og mátti hlusta flautuleik, fiðluleik og píanóleik barnanna í Grindavík,,, Það var mjög gaman að sjá mitt eigið barn vera að spila,, en hitt var hreinasta torture,,,, ég fer aldrei þunnur í svona dót aftur,,,,   Við grilluðum svo um kvöldið,,, ekkert til að tala um,, hefðbundið grill og engin ástæða til að tala um það hér,,,

 


Humar aftur,,,, og aftur og aftur,,,,

Rebekka sumarið 2007Var að vinna í dag,, á sumardaginn fyrsta,, já og gleðilegt sumar,, vonandi verður það eins og síðasta,, fyrir utan óléttuna sem einkenndi sumarið 2007,, ekki fleiri þannig,, já ég var að vinna,, fæ þriggja daga helgi í staðinn,,,, ég ætla að semja umsókn um sérnám,, vinna vorverk,, fara á Kvíabryggju að heimsækja bróðir minn,  borða og vera glaður,,, það er komið sumar og því skylda að vera glaður,,, Rebekka mín er hér,,, hún var að spila við Breiðablik í gær,,, skoraði eina mark síns liðs eins og vanalega,, hún er föðurbetrungur í fótboltanum,,, en ég er betri í öllu öðru,, he he he h,,,    Ég er sérstaklega ánægður með andspyrnu vörubílstjóra og styð borgaralega óhlýðni hvenær sem er,,, held ég,,  kannski óþarfi að hleypa þessu svona upp,, þe ofbeldið og svona en gaman engu að síður,,, ég gerði fiskborgara íallskonar 124 dag,  Þeir eru svona.

 

Eitt flak skötuselur, eitt flak karfi.

250 gr kjúklingabaunir látnar liggja í vatni og kryddi yfir nótt.

hakkað saman með hvítlauk, sellerí,, chili,,, sjávarsalt, steinselja,, rósmarín,, og sítróna,, fyrir þá sem vilja einfalda hlutina er hægt að nota fiskikrydd úr hagkaup,, snilldarkrydd,, já og lime og limebörkur,, af hálfri,,, tvö egg, og smá spelthveiti,,,, já hakkað saman og steikt í litlum borgurum,, mikið gott á bragðið,, og hollt,,,  

 Þetta átti að vera í matinn í kvöld og ég hef hlakkað til að gera þetta en mín heittelskaða og frumburðurinn sögðu bæði oj,,, og vildu eitthvað annað,, þar sem ég er hallur undir konurnar í mínu lífi höfum við humar enn eina ferðina,,,  hann er gerður á sama hátt og ég geri alltaf,, nenni ekki að tala um  meir ,, vitna bara í fyrri færslu þegar Sif var hér í mat,, einhvern tíma,,,  

 Dagurinn eftir...

 

í dag er föstudagur,, ég er í fríi,,, þetta hefur verið einn besti dagur sem ég hef átt lengi,, báðar dætur mínar hjá mér og við byrjuðum daginn á Cafe Roma,,, svo fóbolta,, svo tiltekt,, svo fiskiborgurum frá því í gær,,, svo cafe parís þar sem ég fékk bjór en Rebekka og Mía súkkulaðitertu,,, svo meiri fótbolti í garðinum,, í fínum hita,,, maður þarf ekki mikið,,, nú er ég að sjóða niður kraft úr humarskeljum gærdagsins í humarsúpu núdagsins,,,,  svo verður ekki meiri humar ég lofa,,,

 

Humarsúpan

 

Soð útbúið með því að brasa skeljarnar og svo sjóða í tvo tíma.  

útí soðið þegar það er tilbúið fer:

1 chili

laukur

hvítlaukur

öðuskel slatti af þeim

ein dós niðursoðnir tómatar

eitthvað af hvítvíni

salt og pipar

smá þeyttur rjómi í lokin,,

algerlega geðveikt,,,,,

 

Set svo inn með þessu myndir af dætrum mínum,,, Rebekka að pósa sumarið 2007,,, og Mía að æsa sig yfir flassinu,,,,  

Kveðja Daði,,, 


Fóstureyðingarlúða,, með balsamikkartöflum og salsa,,,,

lúðaÁ að vera í fríi á morgun,, en ég ákvað að taka að mér smá aðgerð fyrir konu sem er að fara erlendis, koma fyrir skrúfu í kjálkabeinið hennar,, síðan eru ritararnir búnir að hlaða daginn með sjúklingum og bætast við aðgerð á LSH eftir hádegi,,, þannig að frídagurinn minn er farinn fyrir lítið,, ,,,  Sif og Arnar eru að fara til Morocco á morgun þannig að þau snöpuðu mat í kvöld,, sem er velkomið ,,, gefst mér tækifæri til að elda lúðuna sem Gísli Vestmannaeyjingur gaf mér,, þetta er svona 30 40 cm flak ,, feitt og fallegt,, svona eins og ég,,,, ,,   Eftir vinnu fór ég og keypti mér hvítvín og ég hef ekki verið svona glaður lengi,, megrun fer illa með fólk,, en ég ákvað samt að hafa fiskinn með hollara lagi,,, hann er svona. já og það er ein mynd af lúðu og vini hennar,,,,

1 lúðusteik,, í þessu tilfelli smálúða.  sett í ofnskúffu og krydduð með fiskikryddi úr Hagkaup,, aldrei prófað svoleiðis áður og kominn tími til að prófa ný krydd,,,,

    í skál er sett,, góð ólífuolía,,, safi úr hálfri sítrónu,, sítrónubörkurinn líka,,,   salt ,, dijon sinnep,,, og sletta hvítvín,,,  þessu er hellt yfir og smátt skorið hvítlauksrif sett þar oná,, held reyndar að ég hafi gert mistök þarna því mig grunar að hvítlaukurinn muni brenna í ofninum,, og því verð ég að hafa hitann lægri,, og þar af leiðandi ekki undir grilli sem suckar,, jæja,,, geri bara betur næst,,, 

Kartöflur voru skornar til helminga og skvettar með balsamik og rosmarín,, hver veit hvernig það á eftir að smakkast,, já og salti,,, og smá olíu,, sjáum til,,, 

 

Salsa,,,

 

eg varð eitthvað desperat um að það vantaði aukabragð svo ég steikti saman

lauk

spínat

hvítlauk

ein dós tómatar með chili

salt og pipar,,

 

eins konar salsa,, sem var on the side,,,

 

jæja,, maturinn var góður því hann kláraðist og fólk var að kroppa í hann löngu eftir að það var hætt að borða,, vínið var gott, félagsskapurinn var góður og Mía var góð að fara að sofa án vandræða,,, eitt sem var ekki gott var fuckings verðbólgan,,, hún er vond,,,

 

Tónlist hefur ekki verið mikil lengi,,, mig dreymir reyndar þessa dagana um að flytja inn Boards of Canada eða að minnsta kosti fljúga eitthvað úti heim til að sjá þá,,,, þeir eru the ultimate chill,,,

abortionhorfði á þrjár myndir á Græna ljósinu,, hef talað um king of kong en sá líka myndina um brazil löggurnar sem eru geðveikar,, og myndin frekar góð,, en besta myndin var Lake of fire,, sem er svakaleg,, fjallar um fóstureyðingar og það eru sýndar fóstureyðingar,, ein áhrifamesta mynd sem ég hef séð og hefur fengið mig til að vera sterklega á móti fóstureyðingum,, ég get samt ekki dæmt fólk sem ákveður að gera þetta,, það hefur enginn rétt fyrir sér þegar kemur að fóstureyðingum,, allavega sjáið myndina og talið við migabortion 2 svo,,,,  Já og ég veit að myndirnar eru ekki þær mest lystaukandi en stundum verð ég að vera pólitískur ,,  Þetta eru ss myndir af fóstrum sem hefur verið eytt,, veit ekki á hvaða viku þessi síðari mynd er ,, líklega eftir 12  viku,, og ég veit alveg um öll hin rökin,, enda ætla ég aldrei að rökræða þetta því eins og ég sagði þá hefur enginn rétt eða rangt fyrir sér hér,, og ég harma að öll umræða þeirra sem eru á móti sé guðstengd sem hún er alls ekki hjá mér,, en þetta eru eins og áður sagði myndir af manneskjum drepnar með harðri hendi laganna áður en þær fæddust,,, og þau koma ekki út í heilu lagi,,,  er í lagi að segja  " svona er þetta bara "

 

laters,,

 

Daði 

 

 


ljúffengt frosið lambalæri með ofnbökuðu grænmeti,,,

breiðdalsvík og kárahnj 283Þegar  ég kom heim í dag hafði mín heittelskaða ekkert ákveðið með mat,, hrfmmmmmm heimavinnandi,,,  en hún tók til og það gleður mitt aldraða hjarta ómælt,,  Eins og Óskar pípari dvelur hugur minn við vorverkin og garðrækt á sumarhúsi tengdamóður minnar,, kartöflur og fleira ,,,, þetta er merki um mikinn þroska og karlmennsku,,, en öngvan aldur til að tala um,,,,, Þannig að ég er með frosið lambalæri,, málið er að ég má detta í það (matarlega séð) um helgar  skv Gauja litla aka Herborgu,,, og frystirinn er fullur af fiski,, þannig að útrunna lambalærið á hálfvirði er komið á matseðilinn,,, ég held að af því að ég fékk það á hálfvirði hafi ég geymt það eins og ormur gullið sitt þar til nú,,, nú verður það eldað,,

 

Gáfur rollunnar í Holtiég setti frosið lærið í ofninn á 70 gráður kl 4. klukkan sex hækkaði ég svo undir því og klukkan átta var það fulleldað,, og gott reyndar,,  Þetta var því miður samt ekki lamb úr Holti Breiðdalsvík þar sem himnafeðgarnir sitja á stóli sínum og yrkja ljóð,, því miður en skepnur þessar sem Afi minn ræktaði og nú Frændi minn eru þær gáfuðustu á byggðu bóli, enda komnar undan Séra Guðmundarkyninu og eru nánast mennskar eins og sést á kossi þessarra tveggja unglamba,, fólkið á myndinni er Haukur frændi minn og dóttir hans Iða,, 

 

Ofnbakað grænmeti er:

 Sæt kartafla

Laukur

döðlur

hvítlauksrif,,,,svona 10 stk

hellingur af balsamik edik og bakað undir grillinu,,, 

 

Það var ekkert með þessu,, megrunin leyfir það ekki,, engin djúsí sósa,, ekki neitt,,, ég hata megrun,,, og strumpa,,,

 

Daði 


Eldeyjar humar,,,

eldeyÉg vaknaði í morgun með bauga niður á hné,, Mía vaknar hress og kát klukkan sex á morgnanna og vaknar auk þess svona á 2 tíma fresti alla nóttina,, ég er að verða geðveikur,,, ekki fleiri börn fyrir mig held ég,,,, það er eins gott að hún er svona skemmtileg og falleg eins og hún er,,,, Þegar ég var í Vestmannaeyjum fékk ég gefins óhemjumikið af fiski,,   ég elska svona viðskipti,, kaupa fiskinn beint af sjómanninum og enginn slorfiskur,, 4 kíló eldeyjarhumar,,, tvær smálúður,, 5 kg skötuselur,,, slatti af ýsu og allt saman ferskt.  Humarinn er heldur ekkert eðlilegur,, Eldeyjarhumar eins og hann gerist bestur,, eins og í lygasögu eins og Róbert segir,,,

 

Arnar er staddur á fylleríi með Pabba sínum í US and A og því gátum við haft skelfisk handa Sif,, hann var svona. 

 ELDEYJARHUMAR,,,,,

Slatti Eldeyjarhumar skorinn eftir endilöngu þegar hann svo svona milliþiðinn,, og görnin fjarlægð, vanalega bræði ég svo saman, 50 gr smjör,  8 hvítlauksrif, heilan hvítlauksrjómaost, kryddjurtir og salt,, já og hálfa sítrónu,, þe safann,,, en þar sem ég er í megrun var þetta svona,, slatti olía ,, slatti hvítlauk,, slatti sítrónusafi,, slatti gráðostur og slatti af andstyggð á þessari fuckings megrun,, hellt yfir og grillaði í slatta stund, passa að gera ekki of mikið,,,  

 SALAT

poki klettasalat

poki spínat

 Salsa sem samanstóð af hálfum lauk ,, smátt skorinn,, ekki samt svo smátt,, meira svona eins og gróft skorinn,,,,, fjórir tómatar og þeir eru skornir smátt,,,, einn bolli ólífur,, smátt skorið,, grænar fylltar,,,, og svo var smá basillauf,,,, paprika,,,rauða papriku og hált epli,,, 

 Karrýsósa Herborgar,,, 

ein dós 5% (fyrir feita) sýrður rjómi,, ein matskeið,, mangóchutney,,, svo dass af salti,, arabísku kjúklingakryddi,, dass líka,,, já ,, og ein til 2 tsk garam masala,, eða tikka man ekki,,,  ogeitt rifið hvítlauksrif,,

 salatið er mixað,, humarinn on the side

brauð var glóðað yfir gasinu,, og með var hvítt vín sérlega gott,, en ég man aldrei nafnið á þessu ,,,, drekk þetta bara,,, 

 

kvöldið var ljómandi,, Sif fór reyndar snemma,,,  og við fórum í háttinn,,, enda uppgefin,,,

 

Daði 


Vestmannaeyjar,,,

vestmannaeyjarEr staddur í Vestmannaeyjum að bíða eftir fyrsta sjúklingi dagsins,,, ég flaug frá Bakka í morgun í stífum vindi og var þess fullviss að það yrði mitt síðasta,, ég hef lítið verið að hugsa um mat undanfarið þar sem ég og mín ektafrú erum komin í átak,, við þykjumst ætla að verða grönn,, og nú er bara borðað salat og súpur,, ég hef ekki fengið kjöt, né fisk né brauð, né bjór, né neitt sem mér finnst gott í fjóra daga,,, og ég er að verða geðveikur,, þetta er sjúklega erfitt,  ég hef þróað með mér matarfíkn sem er erfitt að brjóta,, ég ætla semsagt að koma mér niður um 10 kg og þá get ég byrjað að fitna aftur,,, Um helgar megum við borða eitthvað annað en salat, en það verður að vera hollt svo ég vona að um helgina geti ég talað eitthvað um það,,  af öðru þá sá ég the king of kong sem er á bíódögum græna ljóssins núna og verð að segja að allir verði að sjá þetta,, fyndnari mynd hef ég ekki séð lengi,, fjallar um Donkey kong meistara og þetta er eins og the office...  Þetta eru mestu nördar veraldar,,,

 laters


Árósar,,,,

Ég hef verið í Árósum.  Ég var þar að heimsækja skurðdeildina á háskólaskjúkrahúsinu með það í huga að prófa að sækja þar um stöðu,,, við sjáum til hvað verður,,,,,, þetta var um margt athyglisverð ferð,, bæði matarlega og jafnframt bar á góma margt áhugavert fólk,,, skrítið fólk danir,,,dómkirkjan

lenti í Árósum svona um fimmleytið eftir frekar leiðinlegt ferðalag, ég setta leiðinlegt electró í ipodinn áður en ég fór og eiginlega ekkert annað svo ég hafði næsta ekkert að hlusta á alla leiðina, sætin í vélum Iceland Express sucka ég flýg aldrei með þeim framar það er víst,, annars var þjónustan til fyrirmyndar,,,,,á Kastrup tók við hlaup yfir í terminal 1 og tveggja tíma bið með ekkert til að hugga mig nema Stefán Mána og eina leiðinlegustu bók sem ég hef lesið,,,, það er svona Armageddon fíflahrollur við að lesa þetta,,,, aumar bókmenntir þó svo að ég sé ekki mikill bókamaður,,, ,, ég fékk mér pylsu og bjór á barnum þarna og mátti hlusta á vergjarna lesbíu sem heldur að hún fái samstarfskonu sína til lags við sig með því að tala um píkurakstur og sjálfsfróun, ekki það sem ég nennti að hlusta á með pylsunni, þó gæti verið að Stefán Máni hefði viljað það miðað við skrifin hans,,,  Eftir flugið til Árósa við hlið andfúls manns með flösu tók við ánægjulegast partur ferðalagsins, aksturinn inní borgina,, landslagið hér heillar Íslendinginn því hér er víðsýnt og gróið,, en sjálfsagt engin andgift því hér eru engin fjöll og þar af leiðandi enginn skáldskapur,,,,  Hótelið er ágætt,, Hotel Royal,,, mæli svosem ekki með því,, en ágætt,,   ég gekk örlítið um fyrsta daginn og endaði svo á því að fá mér besta hamborgara sem ég hef fengið,,, í stað þess að hafa hakk voru safaríkar sneiðar af kjöti,, beikon þurrt og krispí,, hvítlauksmæjó,, ruccola,,, og ferskt grænmeti,, og brauðið var bragðmikið líka,,, það er eitthvað sem ég skil ekki hér hvað brauðin í hamborgurum eru alltaf eins og óspennandi,,   ég sofnaði kl 20:00 og svaf til 09:00 ,,  6. apríl,, í dag á Gauti bróðir afmæli,,, hann er 35,,, við erum að eldast,,  ég var svosem ekki mikið að gera í dag allt lokað og einmannalegt,, ég undirbjó mig samt eitthvað fyrir morgundaginn,, hringdi í Sævar og svona,,, ég nennti ekki að leigja mér bíl til að rúnta um eða neitt,,, enda ekki ástæða ferðarinnar,,,,borðaði fínan morgunmat við canalinn,, fjórir litlir réttir,, jógúrt,, eitthvað með reyktum laxi,, omeletta og súkkulaðipannakaka,, kók og kaffi,,,  ég rölti um í dag,,, gerði ekkert,, keypti mér bók um Árósa,, canalkeypti gjafir fyrir stelpurnar,,, horfði á MTV,,,, leiðist,,, 7 Apríl,,, dagurinn á sjúkrahúsinu var skemmtilegur,,, hitti alla nema Jon Jensen sem er víst aðalosturinn þarna,,, hitti hann á morgun er mér sagt,, ég var á stofugangi með Júlíusi sem var mér afar góður,,, hann hugsaði vel um mig allan tímann,,, sýndi mér allt,, og lánaði mér fyrir fiskibollu í hádegismat,, eftir daginn var ég þreyttur,, borðaði vonda pizzu og fór að sofa,,,,  8 Apríl,,, var með Jon Jensen í aðgerð á bilateral klofnum góm á níu ára dreng og Martin Dahl í að fjarlægja liðdiskinn úr TMJ bilateralt,,, þetta var gaman,, Júlíus var með Martin í aðgerðinni.   ég kvaddi síðan með Harðfisk og Ópal að heiman fyrir Júlíus og svo 0.5 kg af súkkulaði fyrir kerlingarnar á deildinni, ég fékk mér svo pylsu og kók við tónlistarhúsið og talaði við kerlinguna á meðan,, pylsur eru svo miklu betri hér en heima,,,, Mér fer fram í dönskunni,,, verslaði meira á stelpurnar  keypti mér linguaphone á dönsku,, og tónlist,,, um kvöldið borðaði ég á víetnömskum stað, KJ MINH fyrir þá sem eiga ferð um Árósa,, hann er við lestarstöðina á veginum sem liggur niður að höfn,, frá ráðhúsinu,, þe í hina áttina,,, þetta er besti asíski matur sem ég hef fengið,,, eins konar víetnamskt tapas,,,á diskun var lamb,, sveppir,, sushi,, vorrúllur,,, sardína,,, kræklingur,, grænmeti,,, og reyktur ávöxtur sem ég kann ekki skil á,,, geggjaður matur,, og gott létt kaliforníu vín með þessu,, man ekki nafnið,,, 9 Apríl,,, ferðin heim var ágæt,, klámkjaftur sem skutlaði mér á flugvöllinn,,, talaði um hvað íslenskar konur hafi verið auðveldar þegar hann var í danska flotanum í denntid,,, hafði bara klst á milli innanlandsflugsins og heim,, smá stress en var síðan í lagi því Iceland Express var með seinkun eins og vanalega,,, aldrei með þeim aftur aldrei,,,

 Það er gott að koma heim,,,, þrátt fyrir ljótar fréttir af dauðaslysum og gjaldþrota bönkum,,

 

Spleen united er málið þessa dagana ,,

 

Daði

 


Ítalskur saltfiskréttur,,,,

saltarinn

Miðvikudagur í feðraorlofi,,,,  gott,,, þetta var eitthvað furðulegur dagur,,, var latur,,, og smá þunnur því það var matarboð í gær,,,, þetta fer að hljóma eins og blogg alkahólistans,,,  alltaf afsökun fyrir að drekka,,, matarboð,,,,  Herborg keypti sér afmælisgjöf frá mér í dag,,, það er eins og vanhæfni mín til að kaupa fallega hluti fyrir aðra en sjálfan mig hafi komið mér til góða,, ég þarf ekki að gera það lengur,, þeir sem eiga að fá hlutina eru búnir að gefast upp á mér og gera það sjálfir,,, en ég þarf samt sem áður að borga,, kannski ég finni leið til að fá þá til að gera það líka,,,,, jæja,,  Saltfiskur í matinn,,, hnakki velt í hveiti,, salti,, pipar í plastpoka,,, steiktur í heitu olíusmjöri þar til gullinn,,, laukur, hvítlaukur, chili, capers látið svitna,, svo tómatar úr dós og eitt glas hvítvín úti,,, soðnar kartöflur með þessu,,,

 

 fínt,,   það er ennþá Tom Waits í gangi,, þarf að fara að fá nýja tónlist,,,

 

já og fuckings einkaþotan er eitthvað að fara í taugarnar á mér,,,, það hlýtur að svíða að vera á örorkubótum og heyra að framkvæmdastjórnin sé að fljúga fyrir sömu peninga og maður fær fimm árum í bætur,,,,  jæja,,, mér finnst þau vera raunveruleikafirrt,,,, einkaþota hjálpar verðtryggingunni minni ekkert,,,,

 

Daði 

 


ekkert í dag....

ég eldaði ekkert í dag,,, ógeðslega langur dagur í vinnu,,,, svo fórum við í grillaðan kjúkling og með því til okkar nánustu vina,, Sifjar og Arnars,, alltaf gott að heimsækja þau,,, ég missti því miður af leikjum Rebekku við FH í dag,,, þær töpuðu en Rebekka skoraði tvö mörk sem voru einu mörk liðsins held ég,,, Herborg fór þannig að einhver mætti,,,,  Árhúsaferðin er eitthvað að trufla mig,, ég er eitthvað kvíðinn,, þarf að tala dönsku,, það er einvern veginn langur vegur frá Breiðdalsvík til Árhúsa fyrir mig,, þarf að komast yfir það,,,,  Jæja ég er farinn að sofa,,, 

 Go Rebekka,,

 

Daði 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband