Fjölgar um fimm......

Það hefur ríkt þráhyggjublandin eftirvænting hjá mér í dag.   Ég keypti mér fimm varphænur í kvöld á 40 krónur stk og sæki þær á morgun, það var því um lítið annað hugsað en hvernig væri best að taka á móti nýjum fjölskyldumeðlimum.  Við Jónas vorum sammála um það að hænur væru ólíkar öndum að því leyti að þær þurfa að fá sérherbergi hver í Andabæ, sem jafnréttissjónarmiða vegna verður endurskírður   við fórum því eftir kvöldmat og hlóðum upp þriggja hæða sjö herbergja blokk fyrir hænurnar til að búa sér hreiður og færa mér fjölmörg gómsæt egg,,,, þar að auki var bætt í heyjið og þar sem Jónas er nýbúinn að gera jólahreingerningarnar þá létum við þar við sitja,,,,


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband