Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Humar fyrir hús og híbýli.....

EldhúsbekkurinnÉg átti góðan dag í dag,,, vaknaði þegar mig langaði (af því að það er miðvikudagur) fékk mér morgunmat með fjölskyldunni, og fór svo uppá LSH í aðgerð, við vorum að grafta bein frá mjaðmakambi framaná efri kjálka sökum lítils beinstuðnings undir tanngerfi,, fylltum líka kinnbeinsholurnar af beini,, en nóg um það,,, Hús og híbýli komu heim í dag að taka myndir af eldhúsinu hjá mér,, þau eru með eldhúsa special,, skilst mér,, ég var ekki með á myndunum því mér svíða svona uppstilltar myndir,, auk þess sem þau fjarlægðu eitthvað af dóti úr eldhúsinu,, og það var frekar sterílt fannst mér,, jæja,,, þegar þau voru farin fór ég að elda,, Herborg hafði ekki tekið neitt út til að elda né keypt neitt svo ég tók út Vestmannaeyja humar frá Gísla vini mínum og hörpuskel úr bónus,,,, fyrst hörpudiskurinn.

  Ég steikti gulrætur og sellerí sem ég hafði skorið í mjög litlar ræmur í olíu.  Steikti svo hörpudiskinn og setti þetta saman inní ofn í svona 8 mín á 180.

 á meðan hellti ég púrtvíni í heitan pott svo það sauð strax,, bætti í það smá soja og chilisultur (enn og aftur sultunni hennar Ástu Bínu) ristaði svo brauð á pönnunni og smurði með gráðosti,, svo grænmetið, svo ruccola, svo hörpudiskinn og sósuna umhverfis,,,

 

þetta var fínt,, ekkert brjálað en öðruvísi og fínt,,,  

 

Humarinn.

 

ég tók hann úr skelinni og hélt uppá skeljarnar.  hakkaði hann saman við

rósmarín

hvítlauk

hálfan tómat

olíu

salt 

pipar

 

setti svo hakkið aftur í skelina sem var butterflied og inní ofninn í 10 mín á 180 og svo undir grillið í 2 mín

 

með þessu var spínatkartöflumús með furuhnetum sem er gerð þannig að ég set spínat, furuhnetur bráðið smjör, soðnar kartöflur og mjólk í magic bulletið,, og hræri í drullu,,, skemmtilegur litur og texture og bragðið sömuleiðis,, ég reyndar sykraði hana svo eftirá svona for old times,,,,   með þessu var líka ruccola,,,

restina af músinni át ég svo með ristuðu brauði,,,Stofan mín

við hjónaleysin drukkum faustinu sjö sem er enn og aftur uppáhalds ódýra vínið mitt.

 

ég er búinn að vera að hlusta á In rainbows undanfarið og hún er góð,, sérstaklega við fyrstu hlustun,, en það kemur líklega ekki önnur plata frá Radiohead eins og Kid A

 

bimmsala bimm

 

Daði 

 

 


11 Febrúar 2008

Ég er 31 árs þennan dag.  Ég hef það fyrir sið að gera ekkert þennan dag.  það er á heimilinu, ég ligg bara í sófanum og geri ekki neitt.  Rebekka bakaði handa mér súkkulaðitertu sem var skreytt með smartís og lakkrís,,, og ég fékk marga pakka..... svo komu mamma pabbi ragga og tengdó í mat um kvöldið... frábært,,,

 

Daðiég og dætur mínar


Hörpudiskur á rúgbrauði, með sætri kartöflu, sellerí, hvítlauk, fennel og gulrót,,,

Hörpudiskur á rúgbrauðiÞað er föstudagur,,,,  Vikan að baki og ég fór í bónus,,, nýja bónus á grandanum,, verð að segja að engin búð í Reykjavík suckar eins mikið,, engin bílastæði, búðin illa hönnuð,, ekkert pláss,, það fór meiri tími í að afsaka sig fyrir að vera fyrir,, eða biðja fólk að hleypa mér framhjá,, versla aldrei þarna aftur,,,, jæja,, ég keypti hörpudisk í bónus,,, og gerði forrétt,, 

 

skar í mjög litlar ræmur:

fennel

gulrætur

hvítlauk

sellerí

 

skar út 0,5 cm þykka sneið af sætri kartöflu og rúgbrauði (notaði glas til að skera það) 

 

steikti kartöfluna og svissaði grænmetið, og setti í ofninn.

 

smurði rúgbrauðið með sérsöltuðu smjöri. þegar grænmetið var orðið mjúkt setti ég það aftur á pönnuna og hellti smá hvítvíni, limesafa og smá (þá meina ég smá) rjóma, og saltaði.  

sæta kartaflan fer oná rúgbrauðið, grænmetið þar oná , svo hörpudiskinn sem var steiktur á pönnu og í ofninn í svona 10 mín.

 

Herborg segir að þetta hafi verið " afar mettandi"  en ég verð að segja að þetta sé mjög góð byrjun á rétti,, vantar eitthvað afgerandi bragð samt,,, "gott texture" segir hún,,, he he h ehe

 

jæja ætla að elda aðalrétt,,

 ok aðalréttur,,   nennti varla að gera neitt,, fór í bað og svona í millitíðinni,,, en aðalrétturinn er líklega sá lélegasti sem þetta blog hefur séð,,, grísahnakki steiktur í hvítlauk og gráðosti með spínatsalati,,, það var nú ekki merkilegra en svo,,, með þessu var bjór og Jaga Jazzist,, tónlist sem gerir mann geðveikan,, nýtísku jazz og electro ívafið er nákvæmlega eins og ég fíla það best,, skrítinn taktur, og skrítin hljóð,,, ekkert lag eins,,,

kveðja Daði 

daði 

 


Gráðostakjúklingabringa frá Akureyri,,,

ljhgÉg held að i kvöld hafi ég lagt grunninn af daðasamlokunni.  Mig hefur lengi dreymt um að eiga svona trademark samloku,  eitthvað sem vinir mínir fá hjá mér og engum öðrum,, ég hef gert tilraunir með þetta lengi, og þá hefur alltaf málið snúist um beikon og einhverjar útfærslur af því,,, beikon egg, eggaldin, bakaðar baunir, brauðið skorið á ákveðinn hátt og svo framvegis,,,, en í kvöld þá kom grunnurinn... ég ætlaði að vera með kjúklingabringu,, í rauninni eitthvað sem ég geri oft,, ég átti Akureyrar gráðost,,, ferskt basil (sem er alltaf til)og svona og með þessa blöndu er erfitt að klúðra,,, Sif og Arnar vinir okkar komu í mat í kvöld,,, þau eru oft hér,, gott að hafa þau,,, en eldamennskan er sumsé svona.

 

4 kjúklingabringur.

 

tek eina í einu og legg hana á borðið, set sellofan yfir og lem bringuna eins og  mig langar að lemja W Bush,, allavega flet ég hana vel út í ca 0,5 cm þykkt, og salta.

 

malla saman í skál. Olíu. Feta, gráðost og niðurskorið basil.

 

ég legg bringurnar í eldfast mót og sulla blöndunni yfir. Annað geri ég ekki við bringurnar og ekki spara gráðostinn.  notaðu ógeðslega mikið af honum.

 

ég skar niður  Sæta kartöflu, kartöflu  og rófu.  í eldfast mót með ólífuolíu, salti, hvítlauk og arabískar nætur kryddi.  Bakað í ofni þar til mjög lint. jafnvel 2 klst.

 

set svo bringurnar undir 250 grill í 10 mín þannig að gráðosturinn grillist.

 

borið fram með salati, í þessu dæmi var spínat, ruccola, furuhnetur og ostur.

 

OK DAÐASAMLOKAN.............

 

Hugmyndin er semsagt þessi.

 

taka speltbrauðið sem selt er í krónunni,, þetta brúna hringlaga.

skera það lágrétt í svona cm þykkar sneiðar og steikja í hvítlauksolíu a grillpönnu.  smyrja með smá af Dijon

steikja svo kjúklinginn alveg eins og lýst (man aldrei ypsilon í lýst) er að framan og leggja oná.

oná það kemur rótargrænmetið eins og lýst er að ofan sem bakað er í hálfgerða drullu.

 oná það kemur svo spínat og ruccola með furuhnetum

 

ég skal veðja að þetta er killer með ísköldu Kóki..

ég ætla að prófa þetta á morgun ég læt vita.

 

Kveðja Daði,,,  


Rósmarín og beikonvafin Lynghæna

LynghænanMiðvikudagur enn á ný og ég er heima hjá mér með barnið,  þetta hlýtur að vera einn mesti kosturinn við starfið mitt, það er frítíminn.  Ég var að fara í gegnum myndirnar mínar því ég hef í gegnum tíðina tekið mikið af myndum af matnum mínum, og fann hér eina góða sem minnir mig á að ég þarf að fara að gera þennan rétt aftur, þetta var í fyrsta skipti sem ég gerði lynghænu og hef í rauninni aldrei náð henni aftur svona góðri.  Ég skrifaði þessa uppskrift niður á eldhúspappír og ætla að prenta hana upp hér á þessa síðu núna.

 

Fjórar lynghænur:

hænsnin eru þerruð vel með pappír, söltuð og pipruð líka inní, og lögð til hliðar.

kramið saman í mortéli:  hvítlaukur, salt, olía, sítrónusafi (afgangur af sítrónu sett inní fuglinn)  rósmarín , engifer og örlítið saffran.

Þessu er síðan makað á fuglinn (gott að nota sítrónuhelmingana) og látið standa í ca 2 klst í ískáp.  hverjum fugli er síðan pakkað inní beikon (mér finnst að það þurfi að vera ca helmingur kjöt og helmingur fita í beikoni) og rósmarín grein höfð á milli (sjá myndina)  best hefði sjálfsagt verið að binda fuglinn saman, en ég gerði það nú ekki að þessu sinni.  ég skar niður sveppi og setti með í mótið og kleip smá smjörbita ofaná hvern fugl,  þetta setti ég í ofninn undir grill í svona 5 mínútur og lækkaði svo hitann í 180 og eldaði þannig, í lokin setti ég grillið aftur í gang og snéri fuglinum við (veit ekki af hverju en ég taldið það betra á þeim tíma) ætli fuglinn hafi ekki verið í ofninum samtals í svona 40 - 50 mín.

Kartöflur voru soðnar með þessu, ásamt rjómasoðnum aspas og sveppunum.

sósan var nú bara soðið af þessu sulli öllu saman, drýgð með olíu, hvítvíni og örlitlu og þá meina ég örlitlu dijon,,,

 

man ekki hvaða vín var með þessu og enn síður hvaða tónlist var í gangi.  Eitthvað franskt eflaust,

 

Það er matarboð í kvöld eins og alltaf virðist vera,, nenni ekki að gera neitt djúsí held ég,, skrifa um það síðar... 

Daði 


Saltkjöt hjá Mömmu minni,,,,

Ég veit að þetta er klisja um matinn hjá mömmu, en ég held að bragðlaukarnir hafi minni,, alveg eins og minn gamli prófessor í lífeðlisfræðinni Jóhann Axelsson sagðst hugsa með lifrinni, held ég að ég hugsi með bragðlaukunum,, hættur að hugsa með einhverju öðru,, já mamma mín,,, var semsagt í mat hjá henni að borða feitt saltkjöt með baunasúpu og kartöflumús,,, hef svosem ekkert annað um það að segja,  einföld matseld en frábær,,

 skál fyrir mömmu minni..

 

daði 


Fjallkonu fashani.

Rebekka mín,,,Síðasta vika var strembin,  Mikið að gera í vinnunni, aðgerð á miðvikudaginn, fundir vegna sérnáms, bréf að skrifa,  fjölskylda að sinna, vísindaferð á föstudaginn.  Það er því kærkomið að það sé komin helgi, ég hef ekkert eldað lengi.  Dagurinn byrjaði á fjallgöngu með Rebekku, við fórum á Úlfarsfell og það er merkilegt að þegar manni tekst að brjóta utanafsér fullorðinshlekkina og renna sér á rassinum þá er það ótrúlega gaman,  eitthvað sem ég þarf að temja mér meira, þe að vera ekki svona fullorðinn og fúll alltaf...  Fjallaloftið eykur manni orku og hugsun og ég var að hugsa um fashanann sem liggur í frystinum mínum og hvernig ég gæti gert hann kræsilegann.  Að elda er besta hugleiðslan held ég.  Hér er fashani handa Rebekku fjallkonu.

 Eitt stykki fashani (keypti hann í krónunni, hann lítur ekkert sérstaklega vel úr,  hamurinn rifinn og tættur, skorið í lærið og hann allur eitthvað samankraminn.  Líklega ástæða þess að krónan er svona "ódýr" ) saltaði hann og pipraði vel.

 Ég kramdi saman í skál:

    Hvítlauk, rósmarín, engifer, sítrónusafa. salt og pipar.

klukkan fimm hellti ég þessu yfir fuglinn, skar í lærin á honum,  og setti sítrónuna og engiferafskurðinn og tvö stykki salami inní hann, og eitt stykki salami á brjóstið á honum.

 klukkan sex byrjaði svo eldamennskan,,,,

 

í tagínunni. 

steikti fuglinn í svona 2 mín á hverri hlið ef hægt er að tala um hliðar á fuglum en þið skiljið hvað ég á við,,,  

bætti síðan við því grænmeti sem ég átti, í þessu tilfelli , lauk, papriku, döðlum, gulu epli og furuhnetum á pönnuna og steikti allt stuffið í svona nokkrar mínútu í viðbót.   

 svo helli ég slatta af bjór útí , og afganginum af grænmetissúpunni sem ég gerði í dag svona 4 dl

svo rétt fljóti uppá grænmetið og set lokið á.  þetta sýður svo í svona 45 mínútur.  Þegar 10 mínútur eru eftir set ég saffran af hnífsoddi útí.  salt og pipar því þetta var ekki nógu djúsí.... 

 

meðan þetta rúllaði voru það kartöflurnar.  vanalega þegar ég elda í tagínunni þá er allt gumsið í bland, en núna langaði mig í sérstakar kartöflur sem voru með kartöflubragði.   ég semsagt gerði bakaðar basil kartöflur, eru ekki flóknar,  sker þær í bita, smjör, basil og gráðostur hellt yfir og bakað.  Alger killer.

 

með þessu var svo.....

 

salat, þið ráðið.,, en ég var með spínat og klettasalat með gráðosti.

 

sósan.

 

villisveppir frá því að við Rebekka fórum að tína í heiðmörk (man aldrei hvort tína er með ypsilon eða ekki)  steiktir í smjöri,  rjóma hellt yfir og soðið smá,, svo chilisultan hennar Ástu Bínu útí ásamt smá hvítvíni..

 Vínið var hið típíska Faustino I sem er mitt uppáhald af ódýrum vínum.......

Ég er búinn að taka TWO LONE SWORDSMEN í gegn undanfarið.  Þeir og Funki Porcini eru að fæða tónlistarþörfina undanfarið,  fyrir þá sem hafa gaman af taktpælingum og smáatriðum í tónlist í bland við skemmtilega melodíu (jón gnarr) þá er þetta málið, en ég þarf svosem ekki að segja electro fólkinu það,, heldur ykkur hinum sem enn haldið að sálin hans jóns míns sé skemmtileg,,,

 giggidi giggidi giggidi giggidi gu


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband