Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010
Johnny er dáinn,,,
10.6.2010 | 15:44
Það var ljót aðkoman við heimreiðina að lumbygade þegar ég kom heim úr vinnunni í dag,, einhver hafði keyrt yfir Johnny Daðason stegginn minn,,,konurnar hans stóðu í kringum hann hjálparvana, það mátti svosem segja að hann hafi storkað örlögunum að vera alltaf að fara yfir götuna þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir um að gera það ekki,, það má segja að hann hafi verið ævintýrasteggur,,, ég ætla ekki að setja inn langa minningargrein, en hvet alla sem vilja minnast hans að hlusta á vídeóið hér að ofan,,,hans verður sárt saknað.
Daði
Matur og drykkur | Breytt 19.12.2010 kl. 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)