OPIÐ BLOGG TIL BORGARSTÝRU

Kæra Borgarstýra.

 

Ekki fyrir löngu þá skrifaði ég þér opið blogg hér á síðunni.  Ég læt fylgja afrit af því hér til glöggvunar fyrir þig ef þú hefur misst af því þegar það var birt fyrst.

     

"   Kæra Borgarstýra.

 

Daði Hrafnkelsson heiti ég og er dyggur og duglegur þegn þinn í miðbæ Reykjavíkur.  VIð götuna mína er gott að búa, nema fyrir það eitt að við virðumst lögð í einelti af þínum þjónum Stöðumælavörðum og Lögreglumönnum reyndar líka.  Nú er eitthvað átak í gangi til að fá fólk til að hætta að leggja uppá gangstéttir og er það ágætt.  Það er gott fyrir þá sem eru gangandi.  Nú er svo komið að það eru varla bílastæði í götunni minni fyrir bílinn minn, það má teljast heppni að fá stæði innan hundrað metra frá íbúðarhúsinu mínu, og beint fyrir utan er fáheyrt, það gerðist reyndar tvisvar á síðasta ári hjá mér.  Því er um fáa kosti aðra en að leggja uppá gangstétt.  Verandi miðborgarbúi þarf ég að fara í bankann og pósthús í miðbænum, alltaf þarf ég að borga í stöðumæli, ef ég ætla á kaffihús þarf ég þess líka,  það er til að borga fyrir afnot af stæinu sem borgin er svo fallega búin að útbúa fyrir mig, en ég hef tekið eftir því  á ferð minni í Grafarvog um daginn að þar þarf fólk ekki að borga fyrir að nota stæðin, því velti ég því fyrir mér hvort þau hafi borgað meira fyrir þau en ég.  Værir þú til í að svara mér þvi, eða borgaði ég líka í stæðunum þar?  Er þetta kannski brot á jafnræðisreglunni frægu, kannski einhver löglærður gæti sagt mér það. Væri ekki sanngjarnt að allir þegnar þínir stórir og smáir borgi fyrir þessi stæði, eða enginn.  Ég á heima hérna, hér bý ég og veiti mannlífinu hér þátttöku.  Ef þetta er vandamál kæra Hanna Birna, komið þá með lausnina.  Væri ekki lausn að líta framhjá þessu til að eignast betra samfélag,  svona eins og útivistartíma barna,,ekki eru foreldrar barna sem eru úti eftir að þeim tíma lýkur sektaðir er það?  Það eru asnar sem brjóta ekki asnaleg lög ,ég krefst þess að settir verða upp stöðumælar við allar opinberar byggingar í Reykjavík, það er óþolandi að ég þurfi að greiða fyrir stæðið fyrir utan pósthúsið niður í bæ, sem er mitt pósthús, en ekki fólk í Grafarvogi, eða Breiðholti,, eða hverrgi annarsstaðar.

 

Ég hef nú nýlega fengið 5000 króna sekt fyrir að leggja uppá gangstétt fyrir utan heima hjá mér.  HEIMA HJÁ MÉR!!!!!

 

Svar óskast kæra Hanna Birna.  "

 

 Svona hljómar nú bréfið mitt. 

 

ég hef svo tvær spurningar handa þér sem gaman væri ef þú gætir svarað 

 

Af hverju kostar ekki að nota stæði við opinberar byggingar annarsstaðar en í 101?

Af hverju kostar að nota stæðin fyrir utan heimili mitt en ekki fyrir utan heimili þitt? 

 

Takk fyrir elsku Hanna Birna,  þinn einlægur Daði Hrafnkelsson 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr heyr!!!

Íris (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband