Færsluflokkur: Matur og drykkur
Nauta rib æ með frönskum og salati
26.9.2008 | 21:46
Frábær dagur,, það eru dagar eins og þessi sem er geggjaðir,,, venjulegur föstudagur breyttist í dag þar sem mesta púðrið fór í litlar skurðaðgerðir og skemmtilegt fólk,,, fékk inní stól til mín kúbana sem er hér að kenna salsa, og aldrei ,,ALDREI,, hef ég séð klinkurnar dofna jafn hratt í hnjánum eins og í dag, hann algerlega át þær,,,, hann gaf mér líka stórt faðmlag þegar hann kvaddi,,, þrátt fyrir að ég hafi skorið úr honum endajaxlinn með látum og miklu blóði,,, svona á fólk að vera, glatt umfram allt,, þessi strákur er kominn langt að , og er hér til að dansa og hafa gaman,, öfundsvert að vera svona frjáls og skemmtilegur.
Sótti Míu á leikskólann og lék við hana lengi í dag,,kubbuðum,, fór í búðina og ríkið og eldaði rib æ fyrir Herborgu sem vantar járn í óléttunni. Svosem ekki flókin eldamennska,, skar kartöflur í franskar og bakaði í ofninum með ólífuolíu og kryddi,,, aðallega salti,,, saltaði steikurnar sem hefðu mátt vera þykkari og steikit í tvær mín áhvorri hlið,,, medium rare,,,,auðvelt salat með þessu og ódýrt vín,, eitthvað argentískt,,, tók til og fór í bað,,,
Er þetta ekki týpískur dagur þrítugs overworked heimilisfaðirs.
Love it
Daði
Kjúklingakjuðar og fréttablaðið
25.9.2008 | 21:34
Það má segja að myndin sem ég sendi í Fréttablaðið hafi vakið kátínu, enda var það tilgangurinn, ekki það að mér finnist hún eitthvað ljót eða fyndin, að mínu viti er ég fallegur þarna, Það var marathon dagur í vinnu, mér finnst það fínt, en þetta var fullmikið, ég mátti varla líta upp í dag. Kláraði um hálfsjö eftir hálftíma pásu um tvöleitið, annað frí fékk ég ekki í dag. Eldaði kjúklingakjuða með fennelhrísgrjónum,, steikti kjuðana með hvítlauk og chili og engifer, niðursoðnir tómatar og Kókosrjómi, venjulegur rjómi og krydd. var alveg ágætt. enginn tía samt,,,, Lék mer mikið við Míu í dag, kenndi henni að gefa "high five" ,,, veit ekki af hverju fólk kennir börnunum sínum þetta, en við dönsuðum líka mikið við Scalpel, sem ég gruna nú að sé einn og sami maðurinn við Luke Vibert, aka Wagon Christ,, kemur í ljós,, Gúggla það síðar.,,, það er föstudagur á morgun Rebekka ætlar ekki að koma um helgina, náttfatapartí í gangi sem er skemmtilegara en pabbi gamli,, sætti mig við það held ég bara, svo er ég á Vaktinni um helgina þannig að útkýldir djammarar og tannskemmdir niðursetningar verða mínir gestir um helgina,, Er samt að spá í að komast á skytterí eitthvað,,, vantar villibráð í frystirinn. á eiginlega bara fisk...
allavegar þá kveður fréttablaðskokkurinn að sinni.
D.
Ítalskt ostapasta með Pouilly Fusse
24.9.2008 | 14:52
Eins og ég sagði var ég að koma frá Flórens og þaðan kemur maður ekki tómhentur. er með Pasta, þurrkaðar kantarellur, eðalvín en öngvar olíur né slíkt, nennti því ekki. Sif og Arnar komu í mat og ég eldaði pasta.
Pastað er soðið al dente eins og allir vita í smá söltu vatni.
sósan er mikil olía , hituð, hvítlaukur og chili sett útí, og mýkt, svo brie, camenbert, gráðostur brætt samanvið, svo safi úr hálfri sítrónu, eitt glas hvítvín, og slatti rjómi, niðurrifinn parmasean og fransbrauð með þessu, ferskt salat og Pouilly Fusse 2004.
Teitur hinn færeyski hefur verið í græjunum,, ágætis plata en þreytt fljótlega,, ekki minn tebolli,, þarf að fara að finna meira electro.
Daði
EKKI FYRIR VIÐKVÆMA.
21.9.2008 | 21:22
Ég er búinn að vera á þingi í Flórens í fimm daga. Komum við í Amsterdam. Það var gaman, gott að hitta kollega frá öðrum löndum og bera saman bækur, góður félagskapur í Hrönn líka, virkilega gott að ferðast með henni, við nutum að sjálfsögðu víns og matar, fórum á Michelin stað sem var ss ekkert sérstakur, en vínið það allra besta sem ég hef fengið, drakk líka heila fjöru af því og man því ekki hvað það heitir,,, það situr mikið eftir í huganum eftir svona stórt þing, vorum á evrópska lýtatannlæknaþinginu, margt sem þarf að vinna úr og svona, næstu vikur fara í það, en það er mikið að gera, margar aðgerðir framundan, misstórar auðvitað en stórar flestar.
í Ferðalaginu las ég aftur "um sársauka annarra" eftir Susan Sontag. Þessi kona var snillingur það er auðséð, hún dó 2004 eftir baráttu við krabbamein, skrifaði ma bók um það. En þessi bók er eitthvað sem þarf að lesa reglulega, hún er að tala um hvernig við erum bombarderuð með myndum af blóði og stríði og hörmungum og ógeði alla daga, að við erum orðin ónæm fyrir þessu, þegar koma myndir af sundurtættum líkum barna og kvenna þá hugsar maður, ja hérna, það er nú meira ástandið þarna, og svo ekki söguna meir. Hún nefnir að í USA er ekki til almennilegt ljósmyndasafn af þrælahaldi og aftökum, af því að USA heldur að þá fari allt í háaloft, þeir vilja ekki að almenningur sér í lagi Svartur almenningur sjái hvernig farið var með fólkið. Hún talar um frægar fréttaljósmyndir af hörmungum mannanna eins og aftökur, sprengingar osfrv ég ætla ekki að fara að þylja þetta upp hér, kaupið bara bókina hún er þess virði, en læt nokkrar myndir fylgja sem hún talar um í bókinni,, væri gaman ef þið þorið að skoða þær að vita hvaða tilfinningar þetta vekur hjá ykkur.
Daði.
Þessi maður er dauður, hann hefur nýfengið í sig kúlu og er að detta
Þessi börn, já og fók er að hlaupa undan Napalmi USA í Vietnam
Þessir gyðingar mæta örlögum sínum í röð
Par úr rússnesku andspyrnuhreyfingunni,
ég var búinn að finna fleiri myndir en ég er ekki að meika þetta,, tek þessa færslu út eftir nokkra daga held ég,,
Þetta er bara eitthvað fast í hausnum á mér eftir að hafa lesið þessa bók,, ef þetta fer í taugarnar á ykkur biðst ég afsökunar
Daði
FLÓrenS
16.9.2008 | 20:00
Jæja ég er farinn til Flórens,,, vonandi verður það gaman,,,
laters
d
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stöðumælabyltingin heldur áfram,,,,
13.9.2008 | 17:44
Ég er alveg hissa á því Dr Gunni skuli ekki vera búinn að taka upp hanskann fyrir mig í neytendasíðunni,,, jæja,,, til að allir séu onboard um síðustu framvindu í baráttu minni fyrir lítilmagnann gegn stöðumælanasistunum þá hef ég pantað tíma hjá Borgarstjóra, fékk ekki,, kemur á óvart,, það er eitthvað svo mikið að gera í orkuveitu, og vatnsmýri og eitthvað,,, jæja,,,, Við áttum gott samtal við hálfgerða ömmu hér í hverfinu okkar,, hún er búin að búa hér svo lengi að hún kann menninguna hér betur en aðrir,,,, hún sagði að það væri pirrandi að það er stöðugt verið að brjóta blómapottana hennar,, rispa bílinn hennar,,, æla á tröppurnar,,,, aldrei kemur löggan,, en þegar við leggjum ólöglega þá koma mörgæsirnar fasistalegar í framan,,, Ritari borgarstjóra tjáði mér að best væri að senda bréf,,, Lögfrótt fólk segir mér að ef maður sendir opinberu embætti bréf þá beri því að svara skriflega,, þannig að ég bíð spenntur. Erindi mitt er ekki af verri endanum, alveg jafn merkilegt og kynþáttamismunur, eða kvenfyrirlitning,, þetta er bílastæðamismunun af hálfu hins opinbera og ég býst við að verða jafn frægur fyrir baráttu mína og Rosa Park. Kannski ekki. En byltingin lifi,, já ,, ég hef tekið eftir því að það hefur ekki alveg verið jafn mikill samhljómur borgaranna og ég bjóst við,, það hafa ekki alveg nógu margir commentað og svona,,
Í öðrum fréttum þá er ég að elda tagínuréttinn fræga handa stelpunum mínum,, klikkar vonandi ekki og ég þarf að vita hvort það sé ekki kúl að skýra barnið Daði Daðason ef þetta er strákur.
Daði stöðumælir
Sjúkrahúsið,,,
12.9.2008 | 22:59
Laaaangur dagur í vinnunni,, samt búinn kl 3,, bara ógeðslega mikið að gera frá morgni til já þrjú,,, jæja,, Mía er búin að vera í rannsóknum í allan dag bara til að læknarnir segja að ekkert sé að,, Enda kannast ég við lækninn sem tók á móti henni,, við vorum saman í læknadeildinni,, hef aldrei haft mikið álit á honum,, kannski hef ég rangt fyrir mér þar eins og alltaf,, en hann allavega gleymdi að skoða hana klínískt,,sendi hana bara beintí rannsóknir,, aldrei skilið það.
Enduðum svo daginn fjölskyldan með tvær snilldarmyndir , eina franska sem heitir köfunarkúlan og fiðrildið, og hin hallam foe,,,, í gær sá ég svo Smart people,, allar einstakar snilldarmyndir og mæli með fyrir hvern sem er,,,,
Daði
Veikindi á heimilinu,,,,
11.9.2008 | 13:22
Það bólar enn ekkert á svari úr ráðhúsinu,,,enda varð ég að senda Hönnu formlegt bréf í dag... jæja,, Mía er veik,,, enn einu sinni,, hún er búin að vera meira heima en á þessum leikskóla síðan hún byrjaði þarna,,,, ógeðsleg pestarbæli þessir leikskólar,,,,
Daði
Vestmannaeyjar....
6.9.2008 | 11:21
er staddur í VM , mínu öðru heimili,, hér kem ég einu sinni í mánuði eins og ég hef kannski talað um áður,, að þessu sinni tók ég með mér hjólið mitt í flugið, hjólaði síðan niður í bæ frá flugvellinum, það var sól og steikjandi hiti, svo rigndi eldi og brennisteini,, og nú er komin sól aftur,, er að spá í að ganga á heimaklett áður en ég fer heim aftur,,
Já og viðbætur við opið blogg til borgarstjórans,, ég krefst þess að settir verða upp stöðumælar við allar opinberar byggingar í Reykjavík, það er óþolandi að ég þurfi að greiða fyrir stæðið fyrir utan pósthúsið niður í bæ, sem er mitt pósthús, en ekki fólk í Grafarvogi, eða Breiðholti,, eða hverrgi annarsstaðar.
Lifi stöðumælabyltingin
Daði
Síðasti dagurinn.
30.8.2008 | 19:55
Það var tregablandið að pakka sígaunanum saman í Norðurfirði þennan morguninn, Leiðindardagur framundan,, eins og að koma niður einhvernvegin,,, vont. Fríið á enda, búið að vera stórkostlegt frí, búin að upplifa margt, hlæja mikið og náttúruvitundin stórkostlega aukin. Sjaldan liðið íslenskar, ef það er hægt að segja það. Það var þögult fólk sem ók til Reykjavíkur þennan dag. Einstaka pylsa og kók á leiðinni.
Tveimur dögum síðar eru Bretarnir farnir, ég byrjaður að vinna og lífið fær sitt venjulega klukknatif, bundið tímanum og póstinum. Við vorum leyst út með gjöfum eins og varasalvi sem breytir þér í gyðing, og myndaalbúm af gyðingabörnum að fermast,,,,, eða hvað það er svosem sem þau gera. Simon er hrifinn af gyðingum.
Daði.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)