Færsluflokkur: Matur og drykkur

Hrútafjarðaráin

Sævar hugsiÉg er búinn að vera í hrútafjarðaránni í þrjá daga núna með Sævari og fleirum, við vorum alls sex manns með þrjár stangir,  Við Sævar veiddum einn en misstum þrjá,, á íslensku þýðir það að við veiddum fjóra en slepptum þremur.  Það var reyndar Sævar sem veiddi þá alla en ég var mikil andleg hjálp á bakkanum og stóð mig ágætlega með háfinn þó svo að tveir hafi sloppið við háfun,,Grásnefið veitt það er komið nýtt nick á mig sem er Daði hávaði,, ha ha h ah aha ha  ..................... það bætist við klassíkera eins og Daði graði er í baði úti á hlaði með súkkulaði,, eða daði spaði,, eða Daði hraði,,, la la la, jæja,,,, maturinn var fínn,  fimmtudagskvöldið byrjaði með Sushi og grilluðum túnfiski og fiskispjótum ásamt 2000 módeli af Pouilly Fuissé. Í hádeginu var alltaf hamborgari og á föstudagskvöldinu var stórsteik.  Naut og bernaise,,, man ekki hvað var að drekka með þessu öllu saman því ég var svo þreyttur,, það er erfið vinna að vera að veiða svona.  Hrútafjarðará 017Veiðihúsið þarna státar af forláta arni sem á engan sinn líkan á íslandi held ég,, þetta var frábær ferð, ég á Sævar mikið að þakka og þetta er enn eitt sem bætist í sarpinn.

 

Daði


Veiði í Hrútafjarðará...

Það er komið sumarfrí,, þe formlegt frí,, ég er búinn að taka mér nokkra daga svona í sumar,,, Aldrei spurði ég mömmu er frábær plata sem allir verða að eiga,, já það er komið sumar,,, ég er að fara í Hrútafjarðará í laxveiði með Sævari og fleiri tannlæknum, ég vona að ég veiði loksins eitthvað,,,, já og maturinn verður ekki af verri endanum,, humar og nautalund,,, eðalvín og ostar,,,, lal la l la la a gæti verið byrjunin á lagi,, jæja,, mér leiðist ,, ég er farinn að veiða,,

 

ciao

 

 


Vikunámskeið og maturinn,,,

TannlæknanördÞað er búið að vera strembin en skemmtileg síðasta vikan,, svo strembin var hún að ég er rétt svo að geta talað um hana núna, ég var staddur á Straumann tannplantaþingi sem Dr. Bjarni Pjetursson sá um og komu þar afar merkir fyrirlesara saman og kenndu okkur aulunum fagið, ég tel mig hafa lært mikið af þessu og er þessu fólki þakklátur,  Það sem var merkilegra við þetta allt saman var matarveislan sem svona þing eru, öll hádegi var borðað á VOX, þar flippaði maður út á valkostunum eins og Megas segir,, ég borðaði sushi, hráskinku, steinbít og saltfist í hvert mál, um kvöldin var yfirleitt eitthvað að gera líka, við fórum á Eyrabakka á Rauða Húsið í humarveislu, humarinn var of látlaus, ég vil hafa mikið bragð af svona fiski og hafa hann lítið eldaðan, það var samt hin mesta veisla og hvítvínsdrykkjan tók toll daginn eftir.  Við fórum líka í Bláa lónið og borðuðum þar hádegismat einn daginn, fengum alltof salta súpu, hreinlega gerð úr bláa lóninu held ég, og svo saltfisk, ég var þunnur þennan dag líka eftir Brúðkaup Sifjar og Arnars.  Súpunni fylgdi svo saltfiskur eins og hann verður bestur, stór stykki og seig.  Við borðuðum líka á Hótel Geysi en það hlaðborð var mikil vonbrigði og verð ég að segja að verri mat hef ég sjaldan fengið.  En toppurinn var bleikjan á Nesjavöllum, held þetta hafi verið þingvalla bleikja af einhverri tegund og hún var algerlega geðveik.  Ég hef verið að hlusta á Sigurrós undanfarið og þessi plata er góð, ég finn mig samt meira vera að hlusta á Ólaf Arnalds enn og aftur.

Það er að koma sumarfrí og þá ætlum við Vestur með vinum okkar frá Bretlandi.  Læt í mér heyra.

 

Daði


Það borgar sig að vera góður,,,

FoieGrasUm daginn fékk ég hringingu frá hóteli hér í borg þar sem var staddur franskur ferðamaður með sára verki, ég sótti hann á hótelið ,,, fór með hann  uppá stofu,, lagaði verkina,, skilaði honum heim,, þegar kom að því að borga var nennið mitt búið þett var seint um kvöld  ég sagði honum bara að senda mér eitthvað fínt frá Frakklandi þegar hann kæmi heim aftur,,, í dag kom sending frá honum,, í henni eru fjórar tegundir af sinnepi,,, confit de canard,  foie gras,, Rilettes de canard,, Sausiesse flageolets og svo framvegis,, ásamt frönsku nammi,,,, heiðarlegustu viðskipti sem ég hef átt um ævina,,,

 ég skal svo segja frá því þegar þetta verður borðað,,,,,

Daði


Kóbíbíf borgari með trufflu og fois gras á ORANGE...

Jæja,, ég er að reyna að tala meira hér eftir mögur ár undanfarið,,, Arnar vinur minn var steggjaður um daginn en ég komst ekki þar sem ég var staddur á Breiðdalsvík í rigningunni,, ég bauð honum því til sárabóta á ORANGE þar sem við fengum okkur hinn fræga og dýra Kobe beef hamborgara með trufflu og fois gras,, já og kampavíni,,,   Staðurinn sjálfur er ógeðslega gay,,, innréttingarnar tilgerðarlegar og þreyttar,,  en þjónustan var fín,,,

 

 

 


Hættur á blús,,, farinn til Breiðdalsvíkur,,,

jæja,, ég er hættur að vera þunglyndur í bili,,, hef ekkert nennt að gera nema láta mér leiðast og horfa á fótbolta,, já og vinna náttúrulega,, fékk loðið svar frá Árósum um daginn,, held það það þýði NEI,, ,geng bara út frá því,, og held áfram á næsta ári,,,, ÉG er að fara heim í sveitina og ætla að láta mér líða vel,, og haldiði síðan öll kjafti,,,,,

Ísbjarnarblús,,,

polarÉg er á miklum blús yfir þessum ísbirni,,, enn einu sinni hafa íslendingar sannað sig,,, er það ekki merkilegt að skyttan skildi vera á undan lögunum á staðinn,, tilbúinn ásamt ca fimm heilalausum vinum sínum tilbúnir í að drepa björninn,,, giska á að þetta hafi bjargað tilhæfulausu lífi þessarra manna þetta árið,, alveg eins og torrevieja gerði árið á undan,, þoli ekki svona fólk,,, líklega tannlaust líka.... það er harður húsbóndi heimskan,,,,  Ég vil perónulega að einhver fari í fangelsi,,, eða missi starfið sitt vegna þessa,,  til dæmis okkar umhverfisráðherra sem er lélegasti ráðherra sögunnar,, ég man varla hvað hún heitir,, svo tilhæfulaus er hún,,, það er magnað að ekki sé borin meiri virðing fyrir lífnu en þetta,,,og hvað ætla þeir svo að gera við hræið,,,þeir hljóta að borða ketið,, þeir hljóta að ætla að sníða sér stakk úr skinninu til að fara í á næsta þorrablót,,,  hvar var lögreglan,,, og hvað var hún að gera,,, ég er ógeðslega pirraður,,  við misstum af besta tækifæri sögunnar til að segja fólki heimsins að við séum ekki brjálaðir hvaladrápara,, við hefðum getað sent heiminum myndir af okkur að sleppa litla bangsa frjálsum ,, jafnvel með sel í kjafti á ísnum sínum,, en í staðinn sér fólkið blóðugt og skítugt líkið af bangsa og tannlausan skítugan landsbyggðarlýðinn monta sig yfir tilhæfulausu drápinu,,,, ANDSKOTINN,,,ég var að steggja vin minn um síðustu helgi,, gott að hitta Óskar,, og Hjalta,, ég öfunda þá af lífinu þeirra,,,, annars hef ég hagað mér illa undanfarið og skammast mín,,ég er heppinn með Herborgu,,, jæja,, fuck the polarbearkillers and fuck the police,,, ,,,,,,,,,,           ,,,,,,,,       ,,,,,,,,,,, ,  , ,,,,,,,,,,,

Jarðskjálfta Hamborgari en franskarnar fóru á gólfið.

Ég hef ekkert talað eða hugsað um mat lengi,,, er eitthvað þunglyndur,,,, en í gær var ég staddur á Selfossi,, nánar tiltekið við enda Ölfusárbrúarinnar að fá mér Mögguborgara í pylsuvagninum,,, meðan við biðum eftir borgaranum þá kom jarðskjálftinn,,,, bíllinn gekk til og frá og pylsuvagninn líka,, greyið stelpurnar sem voru að afgreiða máttu þola súkkulaðistykki og hálfslítradósir í hausinn og franskarnar okkar fóru á gólfið,,, fólk þarna var mjög skelkað og sama má segja um mig og mína,,, en í dag fór þetta meira að sökkva inn,,, þegar ég sá allt tjónið,, þá fór ég að hugsa að ég hafi lent í einhverju stóru,,,,,

 Það magnaða er að hamborgararnir lifðu þetta af og voru afgreiddur mínútu eftir jarðskjálftann,,,þökk sé starfsmanni mánaðarins á Selfossi.,, eða bara í öllum heiminum,, að hafa vit á því að klára pöntunina og rukka fyrir hana er afrek,,,

Gott að enginn meiddi sig alvarlega,,, Pabbi vinar míns tábrotnaði, alltaf nördalegt að tábrotna,,

 

Daði. 

 


Stykkishólmsveisla,,,

Helgin var algert afbragð,,,

 

Ottó og Steina vinafólk okkar bauð okkur ásamt Torfa og Elvu í sumarhús sem foreldrar Ottós eiga í Stykkishólmi,, húsið er lítið bjálkahús á besta stað við höfnina,, ég finn það sterkar og sterkar að ég þarf að eignast bát,,, (ekki segja Herborgu) og líka mótorhjól og flugvél,,  við fórum samt ekki fyrr en á laugardaginn því ég var að klára umsóknina til Árósa,, nú er bara að bíða og sjá,,,  Maturinn var geðveikur,, ég veit ekkert hvað hitt liðið gerði,, ég var með minn hefðbundna humar,, nú þarf ég að finna mér nýjar leiðir í þessari matreiðslu,, hef verið að gera humarinn svona alltof leng,, næst verður hann öðruvísi,, við nutum matar og drykkjar og félagsskapar alla helgina,, ég fékk mér svo svartbaksegg í landnámssetrinu á leiðinni til baka,,

 

Daði 


Einn í heiminum,, með fuckings umsókn um sérnám á heilanum,,,,

Já það er búið að vera strembið lifið undanfarið,,, Herborg var að klára prófin í dag og það lítur út fyrir að hún skarti kínverskri stúdentshúfu á þrjúþúsund næst þegar ég sé hana,,, vona að P Eyfeld sé ekki að lesa,,,, annars finnst mér lítið gagn í svona húfu, ,, heldur ekki á manni hita svo mikið er víst,,, ekki það að nokkuð haldi á mér hita þessa dagana,, nema Mía litla,,, ég er grasekkill meðan á þessu prófum stendur og þegar þau eru loksins búin er mér kastað út fyrir Pál Óskar,,, enn eitt kvöldið er ég heima að horfa á sjónvarpið því ég get ekkert annað fyrir þreytu,,, jæja,, Til hamingju með áfangann elsku Herborg,,, ég hef ekki svo mikið sem komið inní eldhúsið mitt í marga daga,, það er búið að vera slökkt á kaffivélinni og ég veit ekkert hvað er til í ískápnum,, vonandi batnar það fljótlega,,, er að fara í stykkishólm á morgun með vinum mínum að slaka á,,, annars gæti kviknað í mér,,, er að klára umsóknina um Aarhus,,, það er eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert um ævina,,, það er eins gott að það verði þess virði,,,

 

Góða nótt ,, já og góða skemmtun,,,

 

daði 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband