Dagur 2

 

á toppnumÍ birtingu mátti sjá misvel ásigkomna íslendinga skríða út úr svitastroknum tjöldum sínum, kafnandi í eigin andremmu sem angaði af eik og kúk.  Ætli María María hljómi svo vel núna.  Ég vona að einhver þeirra hafi kafnað á kassagítarnum sínum og restin lofi því að drekka aldrei meir.  Ég burstaði tennurnar og hafði mig til meðan við pökkuðum Sígaunanum saman hlustuðum við á Herborgu segja frá Ástinni á Rás 1.  Meðan hún og Pétur máluðu svefnherbergið mitt.  Ég var staddur á veiðum, ég á það gott líf,,,, kannski ég læri að meta það áður en ég dey.  Hún var að segja frá okkar fyrstu kynnum, og hvernig við erum enn að drekka sama kaffibollann.  Hann hefur þó kólnað og hitnað nokkrum sinnum.  Hann er heitur núna vona ég, allavega elska ég hana og er að vinna í því að viðhalda ást hennar til mín.  Eftir ástarhjalið og svart kaffi pökkuðum við Sígaunanum saman,  við vorum komin aftur á þjóðveg 1.  Við borguðum ekkert fyrir söfnuðuinn um nóttina enda kom enginn að rukka.  Græddur eyrir.  Við blasti grátt malbikið að Búðardal.  Búðardalur minnir mig á Þorstein Joð.  "Þetta líf, Þetta líf", þarna er ekkert, ekki einu sinni fallegt finnst mér.  Frá Búðardal fer Ísland að verða fallegt, jafnvel þó miljarða náttstaðurinn milli flókalundar og brjánslæksbústaðir í Borgarfirði og sögur af bólförum Skólastjóra með skjólstæðingum sínum séu áhugavert umræðuefni jafnast fátt á við nátturuna þegar hún er sem best, eða verst.  Firðirnir framundan og heiðarnar gáfu okkur innblástur til frekari upplifana.  16 gráðu brekkur á 10 km hraða með kaffibolla í hendinni.  Svona er gaman að ferðast.  Íslendingarnir að monta sig af landi og þjóð, aðallega ég samt, og Bretarnir gleðja mig með húmornum.  Ætli það sé til íslenskt orð yfir "wit".....   Samgöngur mega ekki batna á þessarri leið finnst mér þetta er partur af sjarmanum.  Við keyrðum alla leið í Flókalund, þar kom Hrafnaflóki og gaf okkur tilveru.  Þar er samt ömurlegt tjaldstæði svo við ákváðum að vera okkar eigin herrar.  tjölduðum niðri í fjöru.  án afskipta.  Strákarnir fóru í fjallgöngu og stelpurnar í sund.  Það er fátt betra en að komast á toppinn, þó fjallið sé ekki stórt.  þegar maður er í fjallgöngu verð ég að hugsa nitchískt.  Kakan er á toppnum,,  Maturinn var borðaður úti í umhverfi sem verður ekki toppað, íslensk fjara í 20 stiga hita.  ég fékk klippingu sem var löngu kominn tími á.

 

þar til síðar

 

Daði

 

Mía mínvið

Reykjavík   Breiðavík 070Reykjavík   Breiðavík 028

Reykjavík   Breiðavík 073Reykjavík   Breiðavík 035

Reykjavík   Breiðavík 049Reykjavík   Breiðavík 090


Vestfirðir.

Reykjavík   Breiðavík 001Við erum búin að vera í sumarfríi með Simon og fjölskyldu.  Simon er breskur vinur minn sem ég hef þekkt í þrjú fjögur ár, við kynntumst á barnum og höfum haldið sambandi síðan þá.  Þegar hann kom hingað fyrst lenti hann í ljótu slysi þar sem fólk actualt dó, Hann var á ferðalagi inná hálendið með jeppa sem velti að mig minnir í þjórsárdal, mig minnir að bæði bílstjóri og framfarþegi hafi látist.  Ég get varla ímyndað mér stemminguna inní flakinu þegar svona gerist ég kynntist honum nokkrum dögum eftir þetta, og það verður að segjast að mann með meira jafnaðargeð og góða lund er erfitt að finna.  Lögreglunni á Selfossi tókst síðan algerlega að klúðra þessu þegar þeir keyrðu hann aftur til Reykjavíkur og skildu hann eftir einan á hótelherberginu sínu, hann sagði mér að þar fyrst hefði þetta orðið ansi raunverulegt.  Hann er mikill Íslandsvinur og hefur gaman af ferðalögum.  Í fyrra fórum við hringinn og að þessu sinni fórum við Vestfirðina.

 

Ferðasagan. 

Dagur 1.

Bíllinn og SígauninnÞegar ég hafði sótt Simon, Katya og Celeste á flugvöllinn fórum við Simon að sækja Sígaunann á laugarvatn.  Þegar við komum í bæinn var ljóst að bíllinn var bilaður þe dráttarbeislið sem átti að bera hann bognaði og daginn eftir tók við verkstæðisleit þar sem þurfti að láta laga bílinn, ég byrjaði að leita að verkstæði fyrir átta og það var búið að laga hann um sexleytið, hér erum við að tala um föstudag fyrir verslunarmannahelgi og kann ég þessum piltum sem suðu bílinn saman miklar þakkir, þegar bílnum var hins vegar rúllað út var sprungið og þá var að finna dekkjaverkstæði sem gekk nú vel þó búið væri að loka. Fall er fararheill.   Þá var að pakka í bílinn og það er meira en að segja það.  Matur skipti höfuð máli og með í ferð var allskonar andagómgæti frá vini mínum í Frakklandi og ekki spillti fyrir að Katya er hálffrönsk og því ætti hún að geta hjálpað til. það var nóg af víni og bjór.  Ég taldi það vera fína hugmynd að kaupa bara kassavín þar sem það geymist vel í svona ferðalagi, en Frakkanum fannst það vont og varla gat látið það inn fyrir sínar varir, verð að vera sammála.  Simon hins vegar er Vegan og því vandast málið fyrir kjötætur, en við keyptum bara andskoti nóg af grænmeti og ávöxtum og POLO kexi.  Við keyrðum í Borgarfjörðinn þar sem við sváfum fyrstu nóttina.   Rebekka hefur verið hjá ömmu sinni og afa á Tálknafirði í tvær vikur núna, þau voru á leið í bæinn sama dag við ætluðum að hitta hana á leiðinni, en þar sem bíldruslan  brást okkur svona þurfti hún að keyra nánast alla leiðina í bæinn með þeim eða til akraness aðeins til þess að keyra aftur til baka,,,,SUCKS,,,,Svona ferðalag er algerlega nýtt fyrir mér eins og þeim, við höfum aldrei farið í tjaldferðalag áður, miljónir íslendinga eiga þessi fellihýsi og skv foreldrum mínum er það eitt það yndislegasta sem hægt er að fjárfesta í , ég verð að segja að það er þægilegt og allt en þetta sem við vorum með er allt of stórt, maður hefur ekkert að gera með örbylgjuofn í tjaldútilegu, allt of þungt að draga það líka, en tjaldstæði eru skemmtileg!!!!! það var því forvitnilegt að sjá Íslendinga á fylleríi á tjaldstæði.  Miðaldra fólk með hundana sína syngjandi fullt. eins undarlega og það hljómar þá finnst mér fullt fólk leiðinlegt.  Ég tók með Hamborgara sem er nýtt sport fyrir mér, tel mig nú grilla heimsins bestu Hamborgara, Þeir voru miðnætursnakkið.  Nóttin fín og við sváfum vel. 

 


Við erum svartir við erum hvítir....

Það var alveg fáránlegt veður í dag, 20 stiga hiti í Reykjavíkinni og mígandi blíða.... jæja,,

ég skrapp á völlinn í fyrsta skipti í langan tíma og það er alltaf jafn gaman að sjá stórveldið KR spila.  já standiði upp fyrir stórveldinu,,, Við tókum á Fjölnismönnum eins og deigi í lúkunum á okkur.  Við unnum stórsigur 2 núll og segja má að aldregi hafi fótbolti verið á hærra plani en þegar Knattspyrnufélagið spilar. 

Áfram KR.

 

 


Hrútafjarðaráin

Sævar hugsiÉg er búinn að vera í hrútafjarðaránni í þrjá daga núna með Sævari og fleirum, við vorum alls sex manns með þrjár stangir,  Við Sævar veiddum einn en misstum þrjá,, á íslensku þýðir það að við veiddum fjóra en slepptum þremur.  Það var reyndar Sævar sem veiddi þá alla en ég var mikil andleg hjálp á bakkanum og stóð mig ágætlega með háfinn þó svo að tveir hafi sloppið við háfun,,Grásnefið veitt það er komið nýtt nick á mig sem er Daði hávaði,, ha ha h ah aha ha  ..................... það bætist við klassíkera eins og Daði graði er í baði úti á hlaði með súkkulaði,, eða daði spaði,, eða Daði hraði,,, la la la, jæja,,,, maturinn var fínn,  fimmtudagskvöldið byrjaði með Sushi og grilluðum túnfiski og fiskispjótum ásamt 2000 módeli af Pouilly Fuissé. Í hádeginu var alltaf hamborgari og á föstudagskvöldinu var stórsteik.  Naut og bernaise,,, man ekki hvað var að drekka með þessu öllu saman því ég var svo þreyttur,, það er erfið vinna að vera að veiða svona.  Hrútafjarðará 017Veiðihúsið þarna státar af forláta arni sem á engan sinn líkan á íslandi held ég,, þetta var frábær ferð, ég á Sævar mikið að þakka og þetta er enn eitt sem bætist í sarpinn.

 

Daði


Veiði í Hrútafjarðará...

Það er komið sumarfrí,, þe formlegt frí,, ég er búinn að taka mér nokkra daga svona í sumar,,, Aldrei spurði ég mömmu er frábær plata sem allir verða að eiga,, já það er komið sumar,,, ég er að fara í Hrútafjarðará í laxveiði með Sævari og fleiri tannlæknum, ég vona að ég veiði loksins eitthvað,,,, já og maturinn verður ekki af verri endanum,, humar og nautalund,,, eðalvín og ostar,,,, lal la l la la a gæti verið byrjunin á lagi,, jæja,, mér leiðist ,, ég er farinn að veiða,,

 

ciao

 

 


Vikunámskeið og maturinn,,,

TannlæknanördÞað er búið að vera strembin en skemmtileg síðasta vikan,, svo strembin var hún að ég er rétt svo að geta talað um hana núna, ég var staddur á Straumann tannplantaþingi sem Dr. Bjarni Pjetursson sá um og komu þar afar merkir fyrirlesara saman og kenndu okkur aulunum fagið, ég tel mig hafa lært mikið af þessu og er þessu fólki þakklátur,  Það sem var merkilegra við þetta allt saman var matarveislan sem svona þing eru, öll hádegi var borðað á VOX, þar flippaði maður út á valkostunum eins og Megas segir,, ég borðaði sushi, hráskinku, steinbít og saltfist í hvert mál, um kvöldin var yfirleitt eitthvað að gera líka, við fórum á Eyrabakka á Rauða Húsið í humarveislu, humarinn var of látlaus, ég vil hafa mikið bragð af svona fiski og hafa hann lítið eldaðan, það var samt hin mesta veisla og hvítvínsdrykkjan tók toll daginn eftir.  Við fórum líka í Bláa lónið og borðuðum þar hádegismat einn daginn, fengum alltof salta súpu, hreinlega gerð úr bláa lóninu held ég, og svo saltfisk, ég var þunnur þennan dag líka eftir Brúðkaup Sifjar og Arnars.  Súpunni fylgdi svo saltfiskur eins og hann verður bestur, stór stykki og seig.  Við borðuðum líka á Hótel Geysi en það hlaðborð var mikil vonbrigði og verð ég að segja að verri mat hef ég sjaldan fengið.  En toppurinn var bleikjan á Nesjavöllum, held þetta hafi verið þingvalla bleikja af einhverri tegund og hún var algerlega geðveik.  Ég hef verið að hlusta á Sigurrós undanfarið og þessi plata er góð, ég finn mig samt meira vera að hlusta á Ólaf Arnalds enn og aftur.

Það er að koma sumarfrí og þá ætlum við Vestur með vinum okkar frá Bretlandi.  Læt í mér heyra.

 

Daði


Það borgar sig að vera góður,,,

FoieGrasUm daginn fékk ég hringingu frá hóteli hér í borg þar sem var staddur franskur ferðamaður með sára verki, ég sótti hann á hótelið ,,, fór með hann  uppá stofu,, lagaði verkina,, skilaði honum heim,, þegar kom að því að borga var nennið mitt búið þett var seint um kvöld  ég sagði honum bara að senda mér eitthvað fínt frá Frakklandi þegar hann kæmi heim aftur,,, í dag kom sending frá honum,, í henni eru fjórar tegundir af sinnepi,,, confit de canard,  foie gras,, Rilettes de canard,, Sausiesse flageolets og svo framvegis,, ásamt frönsku nammi,,,, heiðarlegustu viðskipti sem ég hef átt um ævina,,,

 ég skal svo segja frá því þegar þetta verður borðað,,,,,

Daði


Kóbíbíf borgari með trufflu og fois gras á ORANGE...

Jæja,, ég er að reyna að tala meira hér eftir mögur ár undanfarið,,, Arnar vinur minn var steggjaður um daginn en ég komst ekki þar sem ég var staddur á Breiðdalsvík í rigningunni,, ég bauð honum því til sárabóta á ORANGE þar sem við fengum okkur hinn fræga og dýra Kobe beef hamborgara með trufflu og fois gras,, já og kampavíni,,,   Staðurinn sjálfur er ógeðslega gay,,, innréttingarnar tilgerðarlegar og þreyttar,,  en þjónustan var fín,,,

 

 

 


Hættur á blús,,, farinn til Breiðdalsvíkur,,,

jæja,, ég er hættur að vera þunglyndur í bili,,, hef ekkert nennt að gera nema láta mér leiðast og horfa á fótbolta,, já og vinna náttúrulega,, fékk loðið svar frá Árósum um daginn,, held það það þýði NEI,, ,geng bara út frá því,, og held áfram á næsta ári,,,, ÉG er að fara heim í sveitina og ætla að láta mér líða vel,, og haldiði síðan öll kjafti,,,,,

Ísbjarnarblús,,,

polarÉg er á miklum blús yfir þessum ísbirni,,, enn einu sinni hafa íslendingar sannað sig,,, er það ekki merkilegt að skyttan skildi vera á undan lögunum á staðinn,, tilbúinn ásamt ca fimm heilalausum vinum sínum tilbúnir í að drepa björninn,,, giska á að þetta hafi bjargað tilhæfulausu lífi þessarra manna þetta árið,, alveg eins og torrevieja gerði árið á undan,, þoli ekki svona fólk,,, líklega tannlaust líka.... það er harður húsbóndi heimskan,,,,  Ég vil perónulega að einhver fari í fangelsi,,, eða missi starfið sitt vegna þessa,,  til dæmis okkar umhverfisráðherra sem er lélegasti ráðherra sögunnar,, ég man varla hvað hún heitir,, svo tilhæfulaus er hún,,, það er magnað að ekki sé borin meiri virðing fyrir lífnu en þetta,,,og hvað ætla þeir svo að gera við hræið,,,þeir hljóta að borða ketið,, þeir hljóta að ætla að sníða sér stakk úr skinninu til að fara í á næsta þorrablót,,,  hvar var lögreglan,,, og hvað var hún að gera,,, ég er ógeðslega pirraður,,  við misstum af besta tækifæri sögunnar til að segja fólki heimsins að við séum ekki brjálaðir hvaladrápara,, við hefðum getað sent heiminum myndir af okkur að sleppa litla bangsa frjálsum ,, jafnvel með sel í kjafti á ísnum sínum,, en í staðinn sér fólkið blóðugt og skítugt líkið af bangsa og tannlausan skítugan landsbyggðarlýðinn monta sig yfir tilhæfulausu drápinu,,,, ANDSKOTINN,,,ég var að steggja vin minn um síðustu helgi,, gott að hitta Óskar,, og Hjalta,, ég öfunda þá af lífinu þeirra,,,, annars hef ég hagað mér illa undanfarið og skammast mín,,ég er heppinn með Herborgu,,, jæja,, fuck the polarbearkillers and fuck the police,,, ,,,,,,,,,,           ,,,,,,,,       ,,,,,,,,,,, ,  , ,,,,,,,,,,,

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband