Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
Andaveislan mikla,,,,,,,,,
31.12.2008 | 10:16
Gamlársdagur 2008
í mat eru
Sif, Arnar, Jón Atli, Daníella, Rebekka, Daði, Herborg, Mía og ófædda barnið.
Matseðill
Smakk
Steiktar Stokkandalifrar á eplaskífu með chilisultu og gráðosti.
Forréttur
Stokkandarconfit með Ruccola, Furuhnetum og rúsínum í balsamic sýrópi
Laufabrauð on the side
Aðalréttur
Heitreyktar Stokkandabringur með sykurrjómasoðnum kartöflum, Rauðkáli, Waldorfsalati og Villisveppa/ mandarínu/Koníakssósu
Steiktar andabringur fyrir þá sem eru óléttir reyndar,,,,
Eftirréttur
Minture pavlovur með vanillurjómafrauði og mangósósu.
Þetta liggur fyrir mér í dag,,, veit ekki hvernig í fjandanum mér á að takast þetta,, en ég reyni ,, kannski dálítið overkill á Stokkönd en hún er matreidd á fjölbreyttan máta og franskan,,,, vona að enginn æli,, kannski hef ég næst Gervinýra með vasa,,,
Daði
Matur og drykkur | Breytt 1.1.2009 kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tannpínuvakt að baki,, áramótin framundan,,,
30.12.2008 | 18:23
Stokkandasoð, Rjúpnasoð og Ian Curtis,,, Joy Division,,,
29.12.2008 | 17:23
Undirbúningur fyrir gamlárs er í gangi,, Gamlárs hefur hingað til verið frekar vont kvöld fyrir mig,, ég hef aldrei haft gaman af því,,, en nú ætla ég að njóta þess með góðum vinum og rausnarlegu matarboði,,,, ég ætla að hafa þríréttað amk,, kannski fjórréttað,, góð vín og svo framvegis,,, ég byrjaði í dag að gera soð, það er árlegur viðburður að gera rjúpusoð og frysta, ég geri það á auðveldan hátt ég sýð bara beinin og hjörtu og allt draslið sem verður eftir aðfangadag í drullu og salta,, ég bæti engu í Rjúpnasoðið mitt,, ég vil hafa rjúpubragðið sem ómengaðast,,,, þetta frysti ég svo í klakapokum svo það sé auðvelt að bragðbæta hina ýmsu rétti með þessu yfir árið,, ég er samt að spá í að nota soðið að þessu sinni til að gera rjúpusúpu einhverntíma á miðju ári ,,,, ég er líka að gera Andasoð, ég fékk hjá Birni vini mínum að Flúðum þessar fínu Stokkandaafurðir, bringur, hjörtu, fóörn, bein, lifur og læri,, ég steikti beinin, hjörtu, fóörn saman í smjöri og saltaði, tók lifrarnar frá því þær ætla ég að borða með gráðosti og sultu á gamlárs sem partur af forréttinum,,, eða forréttunum,,, ég sauð þetta svo heillengi með einiberjum og lárviðarlaufi og negul til að gera andakraft,, sem ég ætla að nota yfir árið,,,, svona eldamennska heillar mig mikið, nýta allt sem hægt er og búa til úr því svona kræsingar,, það er sorglegt hve margir kalla sig veiðimenn en eru í rauninni ekki að veiða heldur drepa,, nýta bráðina sorglega illa osfrv,,, Í matinn í kvöld verð ég með það síðasta sem ég á eftir af sendingunni frá Geri vini mínum í Frakklandi, eða Andabringur í grænupiparsósu, soðnar kartöflur og rauðkál í matinn í kvöld,, þannig að það er mikið um Önd þessa dagana,,,, ég mun tala meira um gamlárs þegar það dregur nær,,, Vídéólega séð var gærkvöldið gott, við sáum Tropic Thunder með Ben Stiller sem er skemmtileg,, mér finnst Ben Stiller hafa góðan húmor,, eftir að ég sá Zoolander er hann hetja,,, en við sáum líka CONTROL sem er mynd um upphaf og endi Joy Division séð í gegnum líf Ians Curtis, sem drap sig 23 og markaði endinn á Joy Division og upphaf New Order og sumir segja Danstónlistar þó það sé hægt að deila um það,,, en allavega frábær mynd sem ég mæli sterklega með,, skemmtilegur tónn á henni svarthvít og tónlistin ætti að henta öllum sem áhuga hafa á tónlist yfir höfuð,,,
Rock on
Daði
Trölladyngja í þokunni,,,
28.12.2008 | 17:20
Ég vaknaði snemma og fór á Trölladyngju,,, fyrir þá sem ekki vita hvar hún er, er hún við hliðina á Keili á Reykjanesinu,,, það eru nokkrar trölladyngjur til veit ég og þessi er ss á Reykjanesinu,,,,maður ekur þá sem leið liggur vestur eftir Reykjanesbrautinni rétt framhjá Kúagerði og beigir þar til suðurs inná Reykjanesið,,,, þar er vel fólksbílafær vegur alla leið að bílastæði ca 8 km og þaðan gengur maður á Keili en ég ákvað sökum veðurs að fara að Trölladyngju og skoða mig um þar, eins og sést á myndunum þá var ekki neitt sérstakt veður til að ganga mikið. En þetta markar vonandi upphafið að frekari útivist á þessu svæði,, auðvelt að nálgast það og fallegt þarna,,, Keilir, Grænavatn, Grænadyngja, Eldborg , lambafell og lambafellsgjá og svo framvegis,,,, Ég gekk kannski í svona hálftíma,, hvass vindur og þoka á svæði sem ég þekki ekki neitt,,, ég er alvangur á rjúpnaveiður og þá einhvernvegin drífur maður sig útí hvaða veður sem er,, en í dag þá ákvað ég að þetta svæði á það skilið að ég skoði það í góðu veðri,, ég ætla að reyna að fara eitthvað alla sunnudaga,, sjáum svo til hvað það gerir,,, þetta er merkilegt svæði,, mikil saga,,,, þarna voru smalar heilu sumrin,,, enn leyfar af því,,, þarna er mikill jarðhiti þó ekki hafi gosið þarna í 10 000 ár ekki úr Trölladyngju amk,,, það er samt ljótt að sjá hvernig borað hefur verið þarna,, Skipulagsstofnun sagði að þetta yrðu minniháttar umhverfisspjöll,,, ég get ekki alveg tekið undir það,, vegurinn er lagður nánast oní lítinn læk sem þarna er og mér skilst að þeir séu ekki svo margir á Reykjanesinu,,, og borholan nánast á eina grasbalanum sem þarna er,, ég er viss um að smalinn hefur snúíð sér við í gröfinni við þetta rask,, en á einhverju verðum við að lifa,,,,, ekki hafa peningamennirnir reynst okkur svo vel. Við horfðum á þrjár myndir í gær,, Veðramót er ein sú lélegasta ísl mynd sem ég hef séð,, sérstaklega leikstjórnin þá,,,, allt of mikil sviðsleikur,,, annað var svosem í lagi þessar 10 mín sem ég meikaði að horfa,, The future of food var ok,,, ekkert sérstök og Mors Erling,, var ekkert á við fyrri myndina,,, lélegt videokvöld að baki,, í kvöld ætla ég svo að sannreyna heitreykingargræjuna mína,, blogga um það síðar vonandi,, nema þetta verði vont,, þá segi ég ekki neitt,,,,Daði
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
FAIR TRADE,,, BLACK GOLD,,,
27.12.2008 | 11:49
Tengdó kom í hangikjöt með öllu í hádeginu,, sem og Jón Atli,, við eyddum svo deginum í vídéógláp og nammi,,,, ekki vanþörf á,,, ég horfði á mynd sem heitir Black Gold og fjallar um kaffiverslun í Ethiopiu,,, þar er fylgst með manni sem sér um yfir 70 000 kaffibændur og baráttu hans við vestræn ríki,, hann td ber saman verð á kaffibolla í vestrænu riki og verð á kílói af kaffi til bændanna og munurinn er átakanlegur,,, Fátækt þessa fólks er svakaleg líka,, það er sýnd myndbrot þar sem hungruðum börnum er vísað frá matargjöfum þar sem þau eru ekki nógu vannærð til að falla undir kríteríuna sem Rauði Krossinn setur,,, hlýtur að vera erfitt. Hinar myndirnar voru bara einhver drulla. Læt fylgja hér smá myndbrot,, og minnir mann á að versla skynsamlega,,, FAIR TRADE það er malið á nyju ári,,, batnandi þjóðum er best að lifa
Cheers Daði
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jóladagurinn,,,,
26.12.2008 | 01:00
Við byrjuðum daginn á því að fylgja RED til Grindavíkur,, þar dvelst hún næstu daga hjá mömmu sinni og þeirra fjölskyldu Björgvin stjúpa hennar og litlu Elísabetu systur hennar,, að ógleymdri Nölu taugasjúklingi sem er hundurinn á heimilinu,,,, það er alltaf erfitt að skila henni eftir langa samveru,, ég man þegar hún bjó fyrir vestan og ég sá hana ekki svo mánuðum skipti (þá töluðum við reyndar saman á hverjum degi í símann) og hún kom suður til að vera með mér í fríum þá grét ég sáran þegar hún fór,, það gekk einu sinni svo langt að ég var að taka strætó frá flugvellinum (var bílprófslaus) og ég var einn í strætó, settisat aftast og grét af söknuði að strætóstjórinn sem var kona kom og settist hjá mér til að hugga mig,,, en það þurfti ekki í dag,, en ég sakna hennar ávallt,,, hún er búin að var æðisleg,,, hjálpa mér og styðja við innkaup og þrif,, draumadóttir hvers föðurs,,, (þrátt fyrir svikult atferli hvað varðar fótboltann) ég fyrirgef það aldrei,,,,,, þegar við vorum búin í GRV þá fórum við til Sifjar og Arnars í kakó,,,, heim í fínufötin í boð til frænda Herborgar sem á afmæli í dag,,,, svo til múttu og pabba í Humarsúpu og Hamborgarahrygg (skil ekki það nafn reyndar) frábær matur,, Alla og Stefán frændi voru með og þau eru æði,, alltaf hlegið þar sem þau koma,,,
kvöldinu var svo eytt í nafnapælingar ungfrú nýju Daðadóttur,,, og gott rauðvín og Eric Satie,,, já og nýju matreiðslubækurnar,, ég hef ákveðið að árið 2009 verði ár fisksins á Ránargötunni.....
Kærar kveðjur til allra,,,
Daði
Rjúpnaveislan,,,,
25.12.2008 | 16:38
Við byrjuðum daginn á beikoni og eggjum fjölskyldan,,, fórum síðan í kirkjugarðinn þar sem tengdafaðir minn ber beinin og reyndum að kveikja á kerti en það var of mikið rok,,,, ég gerði rauðkálið í gær,, það er á hefðbundinn máta,,
Rauðkál.
Tveir hausar frekar litlir skornir í þunnar ræmur,, tveir stilkar sellerí skorið í þunnar ræmur líka,,, steikt saman í smjöri og olíu með kanilstöng, ég brá útaf vananum og skar niður chili og hvítlauk og steikti með,, og setti skvettu af hvítvínsediki ,,,,, ég steiki þetta í svona 10 mínútur á pönnu og set svo í ofninn undir álpappír í svona einn og hálfan tíma,, ég enda svo alltaf á því að setja sultu í þetta til að sæta þetta aðeins,,
Hvítkál.
Tveir hausar skornir í þunnar ræmur og steiktir í smjöri og sykraðir smá,,,, Ekki flókið.
Rjúpurnar.
Að þessu sinni er ég með bæði skoskar og íslenskar rjúpur því eins og þeir sem lesa þetta blogg þá fékk ég ekki nema tvær í ár,, Gauti bróðir reddaði mér og Skotland líka,,,, ég hirði að sjálfsögðu lifur, fóarn hálsinn og hjarta úr kvikindunum,,, ég steikti þær með salti og pipar,, ekkert nýtt þar,, en í ár ákvað ég að sjóða þær á gamla mátann í svona einn klukkutíma eins og mamma því hún og pabbi og Ragga eru að koma í mat,,, ,
Sósan,
Ég steikti hálsana, hreinsuð fóörnin, lifrar og hjörtu í smjöri og salti, skar smátt einn lauk og tvo stóra hvítlauksgeira og steikti með,,, ég tók síðan lifrarnar frá og laukinn, hitt fór í pottinn með rjúpunum. Lifrar og laukur var maukað í matvinnsluvél og verður grunnurinn að sósunni. Fyrir extra kraft þá hirti ég kornið úr sarpinum á tveimur rjúpum og lét renna í gegnum kaffivélina hjá mér sjá mynd,, það kom vel út,, mæli með því eflaust líka hægt að nota tesíu Mamma kom svo og sa um restina,,
Kartöflur.
Hefðbundnar brúnaðar kartöflur,, ég sýð þær reyndar alltaf í blöndu af sykri, vatni og rjóma , þar til þær karamelliserast,,,
Laufabrauðið kom síðan úr búðinni.....
Maturinn var frábær,, geysilega vel heppnaður í alla staði,, fannst mér,,, félagsskapurinn var góður og gjafirnar líka,,, ég fékk haug af gjöfum og var ánægður með þær allar ,,,ég fékk ansi mikið í eldhúsið eins og gefur að skilja,,, fábærar matreiðslubækur og áhöld,, mest spennandi var þó heitreykingar græjan,,, hlakka til að prófa hana,,
Gleðileg jól allir saman,,
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er Júdas í fjölskyldunni
24.12.2008 | 00:23
Af hverju borðum við skötu,,,,
23.12.2008 | 21:28
Ég minni mig rækilega á það á Þorláksmessu hve mikið ég er utan af landi,,,, sveitamaðurinn í mér belgir sig út á þessu góðmeti sem hreinsar ekki einungis í manni sinusana heldur sálina eins og gott brennivín eða ljóð,,,
Þorláksmessa, þann 23. desember, er messudagur sem tekinn var upp til heiðurs Þorláki hinum helga Þórhallssyni biskupi í Skálholti. Þorlákur var tekinn í dýrlingatölu á Íslandi og útnefndi Jóhannes Páll II Páfi hann sem verndardýrling Íslands árið 1985. Í raun á hann tvo messudaga á ári; Þorláksmessu á vetri, 23. desember, og Þorláksmessu að sumri, 20. júlí. Í kaþólskum sið var fasta fyrir jólin og átti þá ekki að borða mikið góðgæti og einna síst á Þorláksmessu. Það átti að vera sem mestur munur á föstumat og jólakræsingum, auk þess sem ekki þótti við hæfi að borða kjöt á dánardegi heilags Þorláks. Þessir matsiðir héldust í stórum dráttum þótt hætt væri að tilbiðja Þorlák sem dýrling. Þó var fólki stundum leyft að bragða aðeins á jólahangikjötinu ef það var soðið á Þorláksmessu.Aðalreglan var samt sú að borða lélegt fiskmeti á þessum degi, en misjafnt var hvað hentaði best á hverjum stað. Á Suðurlandi var sumstaðar soðinn horaðasti harðfiskurinn og frá Vopnafirði er þessi vísa til marks um mataræðið:
Á Þorláksdag í matinn minn
morkinn fékk ég hákarlinn
harðan fiskinn hálfbarinn
og hákarlsgrútarbræðinginn.
Um þetta leyti árs veiddist skata einkum á Vestfjarðamiðum. Hún þótti enginn herramannsmatur ótilhöfð og var því algengur Þorláksmessumatur á þeim slóðum. Í aldanna rás tókst Vestfirðingum á hinn bóginn að tilreiða úr skötunni mikið ljúfmeti eins og skötustöppuna, og mörgum þótti það óbrigðult merki þess að jólin væru í nánd þegar lykt tók að berast af skötustöppu.Eftir því sem leið á 20. öld flykktist fólk úr öllum byggðarlögum á suðvesturhorn landsins, Vestfirðingar ekki síður en aðrir. Þeir söknuðu Þorláksmessuskötunnar og margir reyndu að útvega sér hana úr heimahögum. Smám saman smitaði þessi venja þeirra út frá sér og eftir miðja öldina fóru margar fiskbúðir á höfuðborgarsvæðinu að hafa skötu á boðstólum í desember. Fyrir um aldarfjórðungi fóru svo nokkur veitingahús að bjóða til skötuveislu á Þorláksmessu og þar með varð þetta tíska.Þorláksmessuskata er með öðrum orðum ævagömul á Vestfjörðum en ekki nema nokkurra áratuga gömul á Reykjavíkursvæðinu.Alþekkt er í heiminum að matréttir sem upphaflega urðu til vegna fátæktar eða skorts á framboði þykja seinna lostæti. Ástæðan er oft það nostur sem hafa þurfti við matreiðsluna til að gera hráefnið gómsætt. Þetta á til dæmis við um ýmsa franska skelfisks- og sniglarétti. Fyrir utan skötuna má á Íslandi nefna laufabrauðið sem þurfti að vera örþunnt vegna mjölskorts á 17. og 18. öld, og rjúpuna sem upphaflega var jólamatur þeirra sem ekki höfðu efni á að slátra kind.Nú á seinni tímum hefur Þorláksmessa orðið hluti af jólaundirbúningnum og hafa margir þann sið að skreyta jólatréð á þessum degi, sem og borða kæsta skötu.
Þessi fróðleikur er tekinn af vísindavefnum
ég vona að þau drepi mig ekki fyrir að hafa stolið þessu,,, Allavega þá var skatan hjá Mömmu afbragð,, hún var hrikalega kæst og sterk,, jafnvel svo sterk að mamma gat varla borðað hana,, Mía þreytti frumraun sína í skötumennskunni og borðaði magafylli,,, hún verður skáld held ég,,,,
En þetta um Heilagan Þorlák er náttúrulega bull og vitleysa,, enda frá kirkjunni komið,, kannski gaurinn hafi verið til en ég er ekki viss um að hann hafi verið sá dýrlingur sem katholikkar vilja af láta,,,
Á morgun er aðfangadagur,, heitasta hátið kristinna,, hefur enn ekki neitt gildi fyrir mér, nema samveran með ástvinum eins og ég sagði í fyrra,, ég vona að á árinu sem er að líða hafi fleiri hætt að láta mata sig á úreltri trú á guð á skýjunum sem fyrirgefur allt og gerir allt gott,,, það er meira í okkar valdi að gera það en þess sem hinir kalla Guð,,,,,,
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jólin framundan
23.12.2008 | 08:59
Það er búið að vera frekar mikið að gera hér á þessu heimili,,,, en það er að mestu búið og ég ætla ekki að þreyta mannskapinn á leiðindarblaðri um þvott og tiltekt eða verslunarferðir,, en framundan er veisla og ég hlakka mikið til,,, jólin hafa fengið nýja merkingu eftir að börnin komu og svona,, og maturinn er einhvernveginn orðinn aðalatriðið,, mér finnst samt gaman að fá pakka og helst ógeðslega marga.... ég veit að ég fæ líklega flesta pakkana ,,,, he heheh he en framundan er mikil eldamennska,,, skata í gær með Torfa á Sjávarbarnum,, fannst hún ekki jafn góð og á múlakaffi í fyrra,, en frábært kvöld með Torfa,, í kvöld ætla ég að bjóða mömmu og Rebekku uppá skötu held ég,,, mamma verður að fá skötu,, annað er ekki hægt,,,, á morgun eru það svo Rjúpur,,, Jóladagur hjá mömmu í hamborgarahrygg,,, annar í jólum er Hangikjet fyrir tengdó í hádeginu svo fiskur fiskur fiskur,, gamlárs er síðan aðalveislan,,, andaconfit í forrétt,, ég er búinn að gera það fyrir uþb mánuði , heitreyktar stokkandabringur í aðalrétt,, semifreddo í eftirrétt eðalvín og bjór,, er að byrja að reyna að drekka Koníak, og byrjar vel, keypti Merkow VSOP frábært vín,, létt fyrir amatöra eins og mig,,, allavega ég verð með meiri díteila um matargerðina síðar,,,
Ég óska öllum sem þekkja mig gleðilegra jóla,, og farsældar og allt það,,, og munið,,,,
Passiði ykkur á jólakettinum,,, hann bítur,,
Daði